Sport

Úti er ævintýri

Sharapova og Dimitrov saman í Mexíkó er allt lék í lyndi.
Sharapova og Dimitrov saman í Mexíkó er allt lék í lyndi. vísir/getty
Tennisparið Maria Sharapova og Grigor Dimitrov hafa slitið sambandi sínu.

Hin rússneska Sharapova og Búlgarinn Dimitrov hafa verið í saman í rúm tvö ár.

Um helgina fóru af stað orðrómar um að þau væru hætt saman og Dimitrov staðfesti síðan fregnirnar.

„Okkar leiðir hafa skilið. Við áttum yndislegar stundir saman og ég óska henni alls hins besta í framtíðinni," sagði Dimitrov.

Hinn 24 ára gamli Dimitrov er í 16. sæti heimslistans en Sharapova hefur unnið fimm risamót.

Parið fyrrverandi í fríi síðasta sumar.vísir/getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×