Viðskipti innlent

Úthluta metfjölda sérleyfa en hætta við Drekasvæðið

Kristján Már Unnarsson skrifar

Ákvörðun norskra stjórnvalda um að draga ríkisolíufélagið Petoro út úr olíuleit á Drekasvæðinu var tekin daginn eftir að inn í ríkisstjórnina kom nýr flokkur, sem eindregið hefur barist gegn því að Jan Mayen-svæðið yrði opnað til olíuleitar. Samtímis úthlutaði norska ríkisstjórnin metfjölda nýrra sérleyfa til olíuleitar í eigin lögsögu. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2. 



Ríkisolíufélögin CNOOC og Petoro hafa sagt sig frá olíuleit á Drekasvæðinu, aðeins tveimur mánuðum eftir að þau samþykktu að taka leitina yfir á næsta stig með því að fara í grunnar boranir. Ráðamenn íslenska félagsins Eykons eru steinhissa. Stjórnarformaðurinn Heiðar Guðjónsson segir málið lykta af pólitík og efast um að viðskiptalegar forsendur liggi að baki.



Þættir eins og hækkandi olíuverð og ákvörðun Statoil um að hefja vinnslu á sambærilegu svæði í Barentshafi, Johan Castberg-svæðinu, ættu fremur að hvetja til frekari leitar. Statoil áætlar að svæðið beri sig við 35 dollara olíuverð.



Getum er að því leitt að mikið tap CNOOC á fjárfestingum í olíu- og gasiðnaði Kanada hafi fælt kínverska félagið frá frekari fjárfestingum í þessum heimshluta. CNOOC var framkvæmdaaðili Drekaleyfisins og þegar fyrir lá ákvörðun þess um að draga sig út virðist hafa verið rökrétt að Petoro færi einnig út, enda er það stefna norska félagsins að vera aðeins rétthafi sérleyfa en ekki framkvæmdaaðili.



Ríkisstjórnarskipti í Noregi síðastliðinn miðvikudag hjálpuðu heldur ekki til en þá bættist þriðji flokkurinn inn í minnihlutastjórn Ernu Solberg, Venstre-flokkur hinnar umtöluðu Trine Skei Grande. Venstre hefur reynt að byggja upp ímynd sem umhverfisvænn flokkur, og lýsti því yfir fyrir átta árum að olíuvinnsla á Jan Mayen-svæðinu væri hneyksli.



Flokkurinn lagðist gegn því í Stórþinginu í desember að Petoro fengi fjárheimild til meiri olíuleitar á Drekasvæðinu og í stjórnarmyndunarviðræðunum nú í janúar hrósaði Venstre sér svo af því að hafa fengið því framgengt að bæði Lófóten-svæðið og Jan Mayen-svæðið yrðu friðuð gagnvart olíuleit á kjörtímabilinu.



Það hefði því litið afar illa út fyrir flokkinn, þegar málið var lagt fyrir fund norsku ríkisstjórnarinnar síðastliðinn fimmtudag, ef ákvörðun hefði verið tekin um annað en að draga Petoro út úr samstarfinu við Íslendinga á Jan Mayen-svæðinu.



Sérstaklega í ljósi þess að á sama tíma úthlutaði norska ríkisstjórnin 75 nýjum sérleyfum til olíuleitar; 8 í Barentshafi, 22 í Noregshafi og 45 í Norðursjó. Þetta er mesti fjöldi nýrra sérleyfa í hálfrar aldar olíusögu Noregs.


Tengdar fréttir

Kvennastjórn í skugga krassandi kynlífssögu

Ný hægrigræn ríkisstjórn tók við völdum í Noregi í dag. Sögusagnir um kynlífshneyksli nýs menntamálaráðherra skyggja hins vegar á stjórnarskiptin.

Neitar að hætta olíuleitinni og segir málið lykta af pólitík

Olíuleit á Drekasvæðinu gæti verið lokið eftir að kínverska ríkisolíufélagið CNOOC og norska ríkisolíufélagið Petoro ákváðu að skila inn sérleyfi sínu. Íslenska félagið Eykon vill halda áfram þótt Orkustofnun telji forsendur brostnar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×