Innlent

Útgerðin gerði rangt upp við sjómennina

Sveinn Arnarsson skrifar
Ásgrímur Halldórsson SF-250 Sjómenn fyrirtækisins urðu af tekjum að mati framkvæmdastjóra Sjómannasambandsins.
Ásgrímur Halldórsson SF-250 Sjómenn fyrirtækisins urðu af tekjum að mati framkvæmdastjóra Sjómannasambandsins. Fréttablaðið/Anton
Skinney-Þinganesi hefur verið gert skylt að greiða ákveðið verð fyrir síld upp úr sjó og til bræðslu samkvæmt úrskurði Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna. Útgerðin greiddi of lágt verð fyrir afla og hlunnfór þannig sjómenn sína að mati formanns Sjómannasambandsins.

Samkvæmt úrskurði nefndarinnar frá 27. október síðastliðnum skaut Verðlagsstofa skiptaverðs málinu, sem til er komið vegna verðlagningar Skinneyjar-Þinganess á síld hjá áhöfnum Jónu Eðvalds SF200 og Ásgríms Halldórssonar SF250, til úrskurðarnefndar. Bæði skipin stunda uppsjávarveiðar á síld, loðnu og makríl.

Aðalsteinn Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skinneyjar-Þinganess, telur úrskurðinn ósanngjarnan. „Mitt mat er að úrskurður nefndarinnar sé ekki réttur en við munum að sjálfsögðu hlíta honum. Meira hef ég ekki að segja um þennan úrskurð,“ segir hann.

Aðalsteinn gefur lítið fyrir að sjómenn hafi verið hlunnfarnir. „Við erum bara að borga eftir samningum sem eru í gildi og erum ekki að svína á einum né neinum.“

Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands, segir þessa málavöxtu þekkta. „Samkvæmt kjarasamningi eiga útgerðarmenn og sjómenn að gera samning sín á milli. Það sem gerist í þessari verðmyndun á afla er að útgerðirnar kaupa afla af sjálfum sér og laun til sjómanna ákvarðast af virði aflans,“ segir hann.

Verðið sem Skinney-Þinganes greiddi fyrir aflann var 39,4 krónur á kílóið til vinnslu og 35,4 krónur til bræðslu, samkvæmt gögnum frá verðlagsstofunni. Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar var að hækka verðið til vinnslu upp í 50 krónur á kíló og í 38 krónur til bræðslu.

„Verðlagsstofa skiptaverðs á að fylgjast með samningum sem þessum. Þar segir í lögum að ef vikið verði verulega frá því sem eðlilegt getur talist, geti verðlagsstofan skotið máli til úrskurðarnefndar. Verðlagsstofa var þannig sett á laggirnar eftir verkfall sjómanna 1998 til að hafa eftirlit með að ekki sé svínað á sjómönnum. Það er ljóst að þarna hafa sjómenn verið hlunnfarnir um einhverjar upphæðir,“ segir Hólmgeir.

Ákvörðun úrskurðarnefndar gildir til aðfangadags jóla frá og með 24. október síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×