Innlent

Útgangan gæti stöðvað hluta flotans

Hulda Hólmkelsdóttir og Stefán Ó. Jónsson skrifar
SFS-liðarnir Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Jens Garðar Helgason.
SFS-liðarnir Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Jens Garðar Helgason. Vísir
Eins og fram hefur komið skrifuðu Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjómannasamband Íslands í nótt undir nýja kjarasamninga. Sjómanna- og Vélstjórafélag Grindavíkur, aðildarfélag SÍ, tók samningsumboð sambandsins til baka í gærkvöldi og stendur því utan samninga. Einnig hefur ekki náðst samningur við Sjómannafélag Íslands.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, útilokar ekki að þau kunni að verða til þess að einhver skip þurfi að liggja áfram við landfestar.

„Þetta mun örugglega stoppa hluta flotans. Við þurfum að skoða það nánar með aðildarfélögum SFS,“ sagði Heiðrún Lind í samtali við fréttastofu í nótt.

Sjá einnig: Segja góðan vilja skila samningi sem allir geti unað



Hún útskýrir að í flestum tilvikum ættu skip að geta haldið til veiða þó einn skipverji sé meðlimur í þeim félögum sem enn eru í verkfalli. Skipin myndu þá halda til veiða með færri í áhöfn.

„En í öðrum tilvikum gætu verið fleiri í áhöfninni sem eru enn í verkfalli og þá, eðli málsins samkvæmt, er ólíklegt að þau skip haldi til veiða,“ sagði Heiðrún Lind.

Ánægjulegt að loka málinu

Jens Garðar Helgason formaður SFS segist mjög ánægður með samninginn í nótt.

„Það er alltaf gott að loka samningum. Þetta er elsta útistandandi mál hér hjá embættinu þannig að það er mjög ánægjulegt fyrir mig og okkur hér í SFS að hafa náð að loka þessu máli,“ sagði Jens.

„Við erum búnir að ná mjög góðum áföngum og stórum áföngum varðandi samning um fiskverð, nýsmíðaákvæði, umtalsverða hækkun á hlífðarfatapeningum og fleira. þannig að ég held að þetta sé bara mjög góður samningur.“

Aðspurður segir hann að skipin sem hafa staðið við bryggju síðustu daga verði send út á allra næstu dögum.

„Nú fer ákveðið kynningarferli í gang hjá Sjómannasambandinu og það verður bara á allra næstu dögum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×