Viðskipti innlent

Útgáfufélag Fréttatímans skuldar Gunnari Smára 40 milljónir króna

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Gunnar Smári setti 40 milljónir í útgáfufélag Fréttatímans á sínum tíma.
Gunnar Smári setti 40 milljónir í útgáfufélag Fréttatímans á sínum tíma. vísir/stefán
Morgundagur ehf., útgáfufélag Fréttatímans, skuldar Gunnari Smára Egilssyni, fyrrverandi ritstjóra blaðsins og útgefanda blaðsins, 40 milljónir króna en samtals nema skuldir útgáfufélagsins 200 milljónum króna að því er fram kemur í Viðskiptablaðinu í dag.

Í frétt Viðskiptablaðsins segir að félagið Vogabakki ehf., Michael Jenkins og Gunnar Smári séu stærstu kröfuhafar Morgundags. Félagið skuldi hverjum aðila fyrir sig 40 milljónir króna en eigendur Vogabakka ehf. eru þeir Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson.

Fréttatíminn hefur ekki komið út síðan þann 7. apríl síðastliðinn en daginn áður greindi Fréttablaðið frá því að nýir aðilar væru að koma inn í eigendahóp Fréttatímans. Samhliða því myndi Gunnar Smári hætta afskiptum sínum af blaðinu.

Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins í dag fara líkurnar á því að blaðið verði endurreist með innkomu nýrra aðila hins vegar minnkandi þó að margir hafa undanfarið skoðað það að koma með einhverjum hætti að rekstrinum.

Rekstur Fréttatímans hefur verið þungur undanfarna mánuði og um seinustu mánaðamót var ekki hægt að greiða tíu starfsmönnum blaðsins laun. RÚV greindi svo frá því nú í vikunni að starfsmennirnir hefðu ekki enn fengið greitt.

Uppfært klukkan 13:21: Valdimar Birgisson, framkvæmdastjóra Morgundags ehf., gerir athugasemd við frétt Vísis, sem byggð er á umfjöllun Viðskiptablaðsins, og segir að Gunnar Smári Egilsson eigi ekki 40 milljóna króna kröfu á útgáfufélag Fréttatímans. Valdimar vill þó ekki útskýra málið nánar þar sem hann segist ekki hafa frekari heimildir til að þess að gefa upplýsingar um skuldastöðu félagsins.




Tengdar fréttir

Fréttatíminn fær nýja eigendur

Nýir aðilar eru á leið inn í eigendahóp Fréttatímans og verður tilkynnt um breytt eignarhald á næstu dögum, samkvæmt heimildum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×