Viðskipti innlent

Útboð búnaðar í Glerárdalsvirkjun í pípunum

Sveinn Arnarson skrifar
Fallorka framleiðir og selur rafmagn og er að öllu leyti í eigu Norðurorku á Akureyri.
Fallorka framleiðir og selur rafmagn og er að öllu leyti í eigu Norðurorku á Akureyri. fréttablaðið/pjetur
Fallorka ehf., sem er að stærstum hluta í eigu Akureyrarkaupstaðar, skilaði yfir 100 milljóna króna hagnaði í fyrra.

Félagið framleiðir rafmagn til endursölu á Eyjafjarðarsvæðinu og byggir upp raforkuver til framleiðslu. Andri Teitsson, framkvæmdastjóri Fallorku, er ánægður með árangurinn og segir félagið í stakk búið til að efla raforkuframleiðslu enn frekar. „Allt hélst í hendur á síðasta starfsári. Framleiðsla í virkjunum okkar í Djúpadal gekk áfallalaust fyrir sig og markaðsstarf gekk einnig vel. Við erum stolt af því að geta boðið gott verð á rafmagni til almennings um þessar mundir en okkar verð eru hagstæðari en það sem stóru fyrirtækin í landinu eru að bjóða,“ segir Andri.

Fallorka mun á næstu misserum hefjast handa við byggingu nýrrar virkjunar ofarlega í Glerárdal, ofan Akureyrar, og verður miðlunarlón inni í dalnum sem á að gefa af sér rúmlega þrjú megavött. „Við erum þessa dagana að hefja útboð á vél- og rafbúnaði fyrir nýja virkjun ofan Akureyrar. Ef allt gengur að óskum verður sú virkjun tekin í notkun snemma árs 2017,“ segir Andri. Með þessum framkvæmdum opnast möguleikar almennings á því að nýta sér Glerárdalinn sem fólkvang. „Í leiðinni munum við leggja nýjan göngustíg inn Glerárdalinn sem mun gera dalinn mun aðgengilegri fyrir Eyfirðinga og ferðamenn til útivistar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×