Körfubolti

Utanríkisráðherra tók óvart KR-bolla

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gunnar Bragi með bollann umrædda.
Gunnar Bragi með bollann umrædda. Mynd/Facebook
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, birti meðfylgjandi mynd á Facebook-síðu sinni í dag þar sem hann segist hafa „óvart“ gripið í KR-bolla fyrir utanríkisráðherrafund NATÓ í dag.

Gunnar Bragi er frá Sauðárkróki og styður því vitanlega Tindastól, sem mætir einmitt KR í Domino's-deild karla á föstudagskvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

KR og Tindastóll áttust við í lokaúrslitum deildarinnar í fyrra og þá höfðu KR-ingar betur og tryggðu sér titilinn í Síkinu á Sauðárkróki.

Það hefur þó gengið á ýmsu hjá Tindastóli í haust og liðið meðal annars skipt um þjálfara. En Stólarnir urðu á fimmtudaginn fyrsta liðið til að vinna Keflavík í vetur og virðast því líklegir til að verða KR-ingum erfiðir í DHL-höllinni á föstudaginn.

KR getur að sama skapi jafnað Keflavík á toppi deildarinnar með sigri gegn Tindastóli á heimavelli sínum.

Tók algjörlega rangan bolla í dag þegar ég settist niður fyrir utanríkisráðherrafund NATÓ og var náttúrlega gómaður - Áfram Tindastóll!!

Posted by Gunnar Bragi Sveinsson on Tuesday, December 1, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×