Innlent

Utanríkisráðherra Grænlands sendir Íslendingum samúðarkveðjur

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Vittus Qujaukitsoq, utanríkisráðherra Grænlands.
Vittus Qujaukitsoq, utanríkisráðherra Grænlands. Grænlenska landstjórnin
Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra barst í gærkvöldi samúðarbréf frá starfsbróður sínum á Grænlandi, Vittus Qujaukitsoq, eftir að lögregla hafði tilkynnt að talið væri að Birna Brjánsdóttir hefði fundist látin.

Í bréfi Qujaukitsoq segir að fyrir hönd grænlensku landstjórnarinnar og Grænlendinga allra færi hann Íslendingum sínar dýpstu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Hvarf Birnu Brjánsdóttur og tengsl grænlenskra ríkisborgara við atburðina sé mikið sorgarefni.

Hann segir að böndin milli Grænlendinga og Íslendinga séu traust á mörgum sviðum og að glæpurinn sem framinn hafi verið snerti Grænlendinga djúpt. „Hugur Grænlendinga er með ykkur í dag,“ segir í bréfi Qujaukitsoq.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segist hrærður vegna þess samhugs sem Grænlendingar hafi sýnt íslensku þjóðinni á þessari erfiðu stundu.

„Hugur okkar allra er hjá fjölskyldu og ástvinum Birnu. Samkenndin sem vinir og grannar okkar sýna snertir mig djúpt og kertavakan sem Grænlendingar skipulögðu í gærkvöldi sýnir með hjartnæmum hætti hversu djúp vináttan er á milli þjóða okkar,“ segir Guðlaugur í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×