Enski boltinn

Utandeildarhetjan sá um stjörnur Van Gaal

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
5-3 sigur Leicester á stórliði Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær reyndist sögulegur. United hafði aldrei áður fengið á sig svo mörg mörk í leik gegn nýliða í ensku úrvalsdeildinni og þetta er í fyrsta sinn sem liðið tapar leik eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir. En hetja leiksins var hinn 27 ára Jamie Vardy sem fyrir aðeins þremur árum var að spila í utandeildinni í Englandi.

Vardy skoraði eitt mark, lagði upp tvö og fékk bæði vítin sem Leicester skoraði úr í leiknum í gær. Hann hrelldi hinn unga Tyler Blackett, leikmann United, nánast linnulaust þar til að sá síðarnefndi braut á Vardy þegar hann var sloppinn einn í gegn og fékk rautt spjald fyrir.

Vardy var að spila sinn fyrsta leik í byrjunarliði í ensku úrvalsdeildinni og skoraði einnig sitt fyrsta mark. Hann var valinn maður leiksins og skyldi engan undra.

„Þetta hefur ekki verið auðvelt ferðalag hjá mér,“ sagði Vardy hógvær í viðtölum eftir leikinn. Hann var sextán ára gamall þegar honum var neitað um nýjan samning hjá uppeldisfélaginu Sheffield Wednesday og við tók fimm ára dvöl í utandeildunum með liðunum Stocksbridge Park Steels, Halifax Town og Fleetwood Town.

Leicester greiddi eina milljón punda fyrir kappann í maímánuði árið 2012 en þá hafði hann slegið í gegn hjá Fleetwood Town. Það var met fyrir leikmann í utandeildinni en óhætt er að segja að það hafi gengið illa í fyrstu. Svo illa að hann íhugaði að leggja skóna á hilluna.

„Já, ég gafst næstum því upp,“ sagði hann í viðtali við BBC í mars síðastliðnum. „En stjórinn [Nigel Pearson] sannfærði mig. Þeir sögðu hvað eftir annað að þeir hefðu trú á mér og héldu tryggð við mig. Ég er ánægður með að geta endurgoldið traust hans nú.“

Vardy skoraði sextán mörk í 37 leikjum með Leicester í fyrra og virðist allt eins líklegur til að halda uppteknum hætti í úrvalsdeildinni í vetur.

Leicester hefur komið liða mest á óvart í upphafi tímabilsins og er með átta stig að loknum fimm umferðum. Það er sérstaklega áhugaverður árangur í ljósi þess að liðið hefur mætt United, Arsenal, Chelsea, Everton og Stoke á útivelli, þar sem Leicester hafði betur. Eina tapið til þessa kom gegn Chelsea á Stamford Bridge.

„Þetta er auðvitað magnaður sigur,“ sagði Pearson eftir leikinn í gær. „Það hefur ekki verið auðvelt að koma liðinu upp en nú erum við hér og erum við toppinn. Nú snýst allt um að halda okkur hér.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×