Handbolti

Utan vallar: Ekki í aðstöðu til að segja nei

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Íslensku landsliðsmennirnir Ásgeir Örn Hallgrímsson, Aron Pálmarsson, Rúnar Kárason, Sverre Jakobsson, Kári Kristjánsson og Guðjón Valur Sigurðsson í varnarvegg í leik á móti Dönum á EM.
Íslensku landsliðsmennirnir Ásgeir Örn Hallgrímsson, Aron Pálmarsson, Rúnar Kárason, Sverre Jakobsson, Kári Kristjánsson og Guðjón Valur Sigurðsson í varnarvegg í leik á móti Dönum á EM. Vísir/Daníel
Auðvitað ætti Ísland að afþakka sætið á HM í handbolta og segja þessum trúðum hjá Alþjóðahandknattleikssambandinu að éta það sem úti frýs. Þetta hefur verið einn skrípaleikur frá upphafi til enda þar sem reglum hefur verið breytt eftir hentisemi. Svörin frá IHF á þessum tíma hafa verið algjör brandari og feluleikur sambandsins engu betri en hjá meðal grunnskólabekk.

Ekki svona einfalt

IHF hefur breytt HM í Katar í farsa sem enginn ætti í raun að taka þátt í, því á meðan allir taka upp sitt hljóðfæri, hvort sem þeir vilja það eða ekki, og spila með, heldur yfirtrúðurinn Hassan Moustafa áfram að stjórna þessari spilltu sinfóníuhljómsveit.

En málið er því miður ekki svo einfalt. Það er erfitt, og í raun ógerlegt, fyrir Handknattleikssamband Íslands að ætla að berjast á móti þessu. Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, sagði fyrir fund IHF á föstudaginn að hann myndi alltaf þiggja sætið og bar við að sú ákvörðun snerist aðallega um möguleika Íslands á að komast á Ólympíuleikana í Ríó 2016. Og skyldi engan undra.

Íslenska handboltahreyfingin, landsliðið og HSÍ, eru ekki í neinni aðstöðu til að hafna þessu sæti á HM á grundvelli fjármagns eða mögulegra styrkja. Skammarlega lítil fjárútlát ríkisins til íþróttaafreksmanna á landinu einfaldlega leyfa HSÍ ekki að vera litli maðurinn sem stendur uppi á móti valdinu.

Engar 50 milljónir nú

Stór hluti styrkveitinga til afreksmanna á Íslandi er beintengdur Ólympíuleikunum eða miðast við undirbúning fyrir þá með einum hætti eða öðrum. Það er ekki bara að HSÍ vilji komast á ÓL því þar vilja allir vera, heldur vill HSÍ koma liðinu á Ólympíuleikana til þess að eiga möguleika á mikilvægum styrkjum og fá peninga inn í hreyfinguna sem geta í raun og veru rekið það sem við höfum kallað þjóðaríþróttina undanfarna áratugi.

Gleymum því ekki að ein stærsta styrkveiting í sögu HSÍ barst eftir Ólympíuleikana í Peking 2008 þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi mennta- og íþróttamálaráðherra, styrkti sambandið um 50 milljónir króna. Svoleiðis peninga lætur handboltahreyfingin sig vanalega bara dreyma um.

Það gerðist líka korteri fyrir hrun þegar bankarnir spiluðu Matador með peninga sem þeir áttu ekki og menn borðuðu heilgrilluð svín með gullflögum. Þó Ísland myndi sigra á Ólympíuleikunum í Ríó fengi HSÍ ekki 50 milljóna króna styrk í dag.

Ekki í bragð í munni

Það var léttir að heyra Guðjón Val Sigurðsson, fyrirliða landsliðsins, segja í viðtali við ríkismiðilinn að honum væri alveg sama um hvernig strákarnir kæmust á HM. Alveg eins og að vera varamaður í leik, var Ísland varaþjóð inn á HM og tekur sitt sæti þegar það gefst.

Því verður að halda til haga að Ísland var fyrsta varaþjóð Evrópu inn. Við þurfum ekki að fara til Katar með óbragð í munni. Það þurfa Þjóðverjar aftur á móti að gera. Þetta þýðir samt ekki að allt sé í himnalagi; allt gleymt og grafið. Enn einu sinni hefur Hassan Moustafa sýnt okkur hvernig maður hann er og stóra markmið handboltans á heimsvísu á að vera að koma honum frá völdum.

Ævintýri enn gerast?

En hver veit svo nema strákarnir okkar skrifi álíka ævintýri og Danir gerðu á EM í fótbolta 1992 þegar liðið komst bakdyramegin inn og stóð uppi sem meistari. Þá þótti það töff að varaþjóð hefði staðið uppi sem Evrópumeistari; skemmtileg saga til að segja barnabörnunum.

Sé einhver að skrifa handritið að bíómyndinni núna mætir Ísland auðvitað Þjóðverjum í úrslitaleik á mótinu eins og Danir gerðu 1992. Þjóðverjar, þjóðin sem IHF bjó til þennan farsa í kringum með ekkert nema dollaramerki í augunum – að vinna þá í Katar yrði ljóðrænt réttlæti í meira lagi.


Tengdar fréttir

Guðjón Valur: Það skiptir engu máli hvernig við komust á HM

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson er gríðarlega ánægður með fréttirnar um að íslenska handboltalandsliðið verði með á HM í Katar í janúar. Framkvæmdastjórn Alþjóðahandboltasambandsins hleypti Íslandi inn bakdyramegin á mótið í kvöld.

HSÍ ætlar að berjast fyrir farseðlinum til Katar

Möguleikar Íslands á að taka þátt á HM í Katar í janúar jukust mikið í gær þegar Barein ákvað að draga lið sitt úr keppni. Nýju reglurnar hjá IHF, sem urðu þess valdandi að Þjóðverjar fóru á HM en ekki Ísland, gætu á endanum orðið þess valdandi að Ísland

Ísland verður með á HM í Katar | Ísland og Sádí-Arabía fá lausu sætin

Íslenska handboltalandsliðið verður með á HM í handbolta í Katar í janúar eftir allt saman en þessi óvænta ákvörðun var tekin á fundi Framkvæmdastjórnar IHF í Þýskalandi í dag samkvæmt óstaðfestum heimildum íþróttadeildar 365 . Íslenska landsliðið fær sæti í C-riðli með Svíum og Frökkum.

Ísland með á HM í handbolta í Katar eftir allt saman?

Íslenska handboltalandsliðið gæti verið á leiðinni á HM í Katar í janúar eftir allt saman vegna ástandsins við Persaflóann en svo gæti farið að bæði Barein og Sameinuðu arabísku Furstadæmunum yrði meinuð þátttaka á HM.

Voru Þjóðverjar öryggir með sæti á HM fyrir umspilið?

Þýskaland var fyrsta landsliðið sem fékk "gefins" sæti á HM í handbolta í Katar en síðan hafa Ísland og Sádí-Arabía einnig komist bakdyramegin inn á Heimsmeistaramótið sem fer fram í janúar næstkomandi.

Þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð

Handknattleikssamband Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem tilkynnt var að sambandið hefði ákveðið að kæra ákvörðun Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, um að úthluta Þýskalandi lausu sæti á HM til dómstóls sambandsins. Aðeins fjórir mánuðir eru til stefnu en þetta er líklegast fyrsta skrefið enda mun HSÍ líklegast þurfa að fara með málið fyrir Alþjóða íþróttadómstólinn í Lausanne í Sviss sem tók fyrir málefni Luis Suárez í sumar.

Einar: Höfum ekkert heyrt frá IHF

HSÍ hefur hvorki heyrt frá Alþjóða handknattleikssambandinu (IHF) né Evrópska handknattleikssambandinu (EHF) en þetta staðfesti Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ við Vísi rétt í þessu.

Guðmundur B. Ólafsson: Ég þarf ekki að tala Aron Pálmarsson til

Aron Pálmarsson verður með íslenska landsliðinu á HM í handbolta í Katar þrátt fyrir ummæli í vikunni um að hann nennti ekki að koma inn á HM sem einhver varaþjóð. Formaður HSÍ hefur engar áhyggjur af því að Aron verði ekki klár í verkefnið en Ísland fékk í dag sæti á HM í Katar í janúar.

Þetta lýsir vonandi upp myrkrið fyrir íslensku þjóðina

Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, var ánægður með fréttir gærkvöldsins þegar Ísland fékk sæti á HM í Katar ásamt Sádí-Arabíu en þetta var niðurstaða fundar Framkvæmdastjórnar IHF. "Við gleðjumst svo sannarlega yfir þessu og teljum þetta vera mikið og stórt skref fyrir hreyfinguna,“ sagði Guðmundur.

HSÍ kærir til dómstóls IHF

Handknattleikssamband Íslands sendi frá sér í dag tilkynningu þar sem fram kom að HSÍ hefur höfðað mál fyrir dómstól Alþjóða handknattleikssambandsins til ógildingar á ákvörðun IHF um að úthluta Þýskalandi sæti á Heimsmeistaramótinu í Katar.

HSÍ ætlar ekki að gefa eftir

Von er á opinberri yfirlýsingu frá Handknattleikssambandi Íslands á morgun vegna ákvörðunar IHF að úthluta Þýskalandi sæti á Heimsmeistaramótinu í handbolta sem fer fram í Katar í upphafi næsta árs. IHF ákvað að draga Ástralíu úr leik og úthluta Þýskalandi sætinu þrátt fyrir að EHF hefði tilkynnt HSÍ að Ísland væri fyrsta varaþjóð frá Evrópu inn á mótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×