Lífið

Usher kíkir á afturenda Kim Kardashian

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Meðfylgjandi mynd náðist af tónlistarmanninum Usher á MTV Video Music-verðlaunahátíðinni sem haldin var í Kaliforníu í gærkvöldi.

Eins og sést virti Usher afturenda raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian vel fyrir sér og virtist ekki einu sinni skammast sín fyrir það. Ekki fylgir sögunni hvort Usher og Kim þekkist en rass raunveruleikastjörnunnar hefur verið talsvert á milli tannanna á fólki síðustu misseri.

Kim mætti á verðlaunahátíðina með hálfsystrum sínum, Kendall og Kylie Jenner, og kynnti tónlistarmanninn Sam Smith á svið og flutti hann slagarann Stay With Me.

Usher tróð einnig upp á hátíðinni og flutti lagið Give It To You með Nicki Minaj og áður óheyrða lagið Believe Me.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×