Sport

Usain Bolt fagnaði gullinu með því að syngja með í Bob Marley lagi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Usain Bolt fagnar sigri.
Usain Bolt fagnar sigri. Vísir/Getty
Jamaíkamaðurinn Usain Bolt vann 200 metra hlaup karla á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt en þetta eru þriðju Ólympíuleikarnir í röð þar sem hann tekur gullið í þessari grein.

Usain Bolt kom í mark á 19,78 sekúndum en hann talaði um það eftir undanúrslitin í gær að hann ætlaði að reyna að bæta heimsmetið sitt frá því á HM í Berlín 2009.

 

Bolt var reyndar langt frá heimsmeti sínu (19.19 sekúndur 2009) og Ólympíumeti (19.30 sekúndur 2008) en sigur hans var öruggur. Hann var ekki alveg sáttur eftir hlaupið því hann ætlaði sér meira en gleymdi þeirri reiði fljótt.

Þetta voru önnur gullverðlaun Usain Bolt á Ólympíuleikunum í Ríó og áttundu gullverðlaun hans á Ólympíuleikum. Eins og þegar hann vann 100 metra hlaupið á dögunum á þriðju leikunum í röð varð Bolt í nótt fyrsti maðurinn í sögunni til að vinna 200 metra hlaupið á þremur Ólympíuleikum í röð.

Skemmtikrafturinn Usain Bolt kom að sjálfsögðu fram í sigurvímunni þar sem hann söng meðal annars undir með lagi Bob Marley með jamaíska fánann í annarri og þann brasilíska í hinni.

Usain Bolt og Bob Marley eru án efa frægustu Jamaíkamennirnir í sögunni og þetta átti því vel við. Nú er bara að klára dæmið í boðhlaupinu og vinna þrjú gullverðlaun á þriðju leikunum í röð.

Kanadamaðurinn Andre De Grasse, sem reyndi að vinna Bolt þegar Jamaíkamaðurinn slakaði á í lokin á undanúrslitahlaupinu í gær, varð annar í hlaupinu á 20,02 sekúndum.

Frakkinn Christophe Lemaitre fékk síðan bronsið þrátt fyrir að koma á sama tíma í mark og Adam Gemili frá Bretland en þeir hlupu báðir á 20,12 sekúndum. Christophe Lemaitre var sjónarmun á undan.

Öruggur sigur.Vísir/Getty
Usain Bolt var smá svekktur að slá ekki metið.Vísir/Getty
Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×