Fótbolti

Úrvalslið Argentínu á HM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Daniel Passarella var fyrirliði Argentínu á HM 1978 á heimavelli.
Daniel Passarella var fyrirliði Argentínu á HM 1978 á heimavelli. Vísir/Getty
Í tilefni af úrslitaleik Argentínu og Þýskalands í kvöld setti Vísir saman úrvalslið beggja þjóða á HM í gegnum tíðina.

Athugið að þetta er úrvalslið þeirra leikmanna sem hafa staðið sig best fyrir hönd þessara þjóða á HM, þannig að menn á borð við Bernd Schuster, Alfredo di Stéfano og José Manuel Moreno, sem spiluðu aldrei á HM, koma ekki til greina.

Úrvalslið Argentínu:

Markvörður: Ubaldo Fillol (1974, 1978, 1982)

Stóð í marki Argentínu þegar liðið varð heimsmeistari á heimavelli 1978 og var valinn í úrvalslið mótsins. Fillol lék í treyju númer fimm á mótinu, en leikmönnum Argentínu var úthlutað númerum eftir stafrófsröð.

Hægri bakvörður: Javier Zanetti (1998, 2002)

Einn stöðugasti leikmaður fótboltasögunnar og besti hægri bakvörður sem hefur komið frá Argentínu. Lék aðeins á tveimur heimsmeistaramótum, en það er óskiljanlegt af hverju Zanetti hlaut ekki náð fyrir augum Josés Pekerman og Diegos Maradona fyrir HM 2006 og 2010.

Miðvörður: Oscar Ruggeri (1986, 1990, 1994)

Lykilmaður í vörn argentínska landsliðsins sem varð heimsmeistari í Mexíkó 1986 og tapaði fyrir Þjóðverjum í úrslitaleik fjórum árum seinna. Varð Spánarmeistari með Real Madrid tímabilið 1989-90 og var þá valinn besti erlendi leikmaðurinn í La Liga.

Miðvörður: Daniel Passarella (1978, 1982, 1986)

Var fyrirliði Argentínu á heimavelli 1978 og var í hópnum 1986, en hann taldi að óvild Diegos Maradona í hans garð hefði komið í veg fyrir að hann spilaði á mótinu. Skoraði mikið af mörkum þrátt fyrir að spila í öftustu línu.

Vinstri bakvörður: Silvio Marzolini (1962 og 1966)

Jafnan talinn besti vinstri bakvörður sem Argentína hefur alið af sér. Spilaði á HM 1962 og 1966 og var valinn í úrvalslið HM á síðarnefnda mótinu. Þriðji leikjahæsti leikmaðurinn í sögu Boca Juniors.

Miðjumaður: Javier Mascherano (2006, 2010, 2014)

Fastamaður í liði Argentínu frá árinu 2003. Hefur spilað frábærlega á miðjunni á HM í Brasilíu, þrátt fyrir að spila venjulega í stöðu miðvarðar hjá Barcelona.

Miðjumaður: Ossie Ardiles (1978, 1982)

Lykilmaður í heimsmeistaraliðinu 1978 og gekk í raðir Tottenham eftir mótið og var í herbúðum Lundúnaliðsins í tíu ár. Var lánaður frá Spurs á meðan á Falklandseyjastríðinu stóð.

Lionel Messi er í úrvalsliðinu.Vísir/Getty
Framliggjandi miðjumaður: Lionel Messi (2006, 2010, 2014)

Hefur oft legið undir gagnrýni fyrir frammistöðu sína með landsliðinu, en hefur svarað þeim gagnrýnisröddum með því að leiða Argentínu í úrslitaleikinn gegn Þýskalandi. Hefur skorað fjögur mörk og lagt upp eitt í Brasilíu.

Framliggjandi miðjumaður: Diego Maradona (1982,1986, 1990, 1994)

Fór fyrir heimsmeistaraliði Argentínu 1986. Skoraði fimm mörk og átti fimm stoðsendingar í leikjunum sjö í Mexíkó. Leiddi Argentínu svo í úrslitaleikinn fjórum árum síðar. Var sendur heim af HM í Bandaríkjunum eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.

Framherji: Gabriel Batistuta (1994, 1998, 2002)

Markahæsti leikmaður Argentínu á HM með tíu mörk og jafnframt eini leikmaðurinn sem hefur skorað þrennu á tveimur heimsmeistaramótum. Lék lengst af með Fiorentina þar sem hann var í miklum metum.

Framherji: Mario Kempes (1974, 1978, 1982)

El Matador var markakóngur og besti leikmaður mótsins þegar Argentína varð heimsmeistari 1978. Skoraði sex mörk, þar af tvö í úrslitaleiknum gegn Hollandi. Lék lengi með Valencia á Spáni.

Varamenn:

Sergio Romero, markvörður (2010, 2014)

Luis Monti, miðvörður/miðjumaður (1930)

Alberto Tarantini, vinstri bakvörður (1978, 1982)

Diego Simeone, miðjumaður (1994, 1998, 2002)

Jorge Burruchaga, miðjumaður (1986, 1990)

Jorge Valdano, framherji (1982, 1986)

Guillermo Stábile, framherji (1930)


Tengdar fréttir

Sabella: Leikmennirnir eru þreyttir

Þjálfari argentínska landsliðsins óttast að þreyta gæti orðið Argentínumönnum að falli í úrslitaleik Heimsmeistaramótsins.

Sabella: Fótbolti er óútreiknanlegur

Alejandro Sabella, þjálfari argentínska landsliðsins, trúði ekki eigin augum þegar hann sá Þýskaland tæta í sig brasilíska liðið í leik liðanna í undanúrslitum Heimsmeistaramótsins í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×