Sport

Úrslit Íslandsmótsins í CrossFit uppfærð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Verðlaunahafarnir hinir kátustu.
Verðlaunahafarnir hinir kátustu. mynd/aðsend
Eins og fram kom á Vísi voru Hinrik Ingi Óskarsson og Bergur Sverrisson, sem lentu í 1. og 2. sæti á Íslandsmótinu í CrossFit, sviptir verðlaunum sínum eftir að þeir neituðu að gangast undir lyfjapróf að mótinu loknu. Þeir voru einnig dæmdir í tveggja ára bann frá CrossFit á Íslandi.

Úrslitin á Íslandsmótinu í karlaflokki hafa nú verið uppfærð.

Davíð Björnsson er hinn nýi sigurvegari á Íslandsmótinu en hann færðist upp úr 3. sætinu í það fyrsta. Stefán Helgi Einarsson endaði í 2. sæti og Haraldur Holgersson í því þriðja. Þeir fengu verðlaun sín í dag.

Í kvennaflokki varð Þuríður Erla Helgadóttir hlutskörpust. Anna Hulda Ólafsdóttir endaði í 2. sæti og Sólveig Sigurðardóttir í því þriðja.


Tengdar fréttir

Hinrik Ingi: Ég er til í að fara í lyfjapróf

"Ég hef ekkert að fela. Ég fór ekki í lyfjaprófið því mér fannst vera brotið á mér. Mér fannst þetta vera ófagmannlega gert og asnalegt,“ segir Hinrik Ingi Óskarsson sem í gær varð Íslandsmeistari í CrossFit en síðan sviptur gullverðlaunum og settur í tveggja ára bann af því hann neitaði að fara í lyfjapróf.

Formaður stjórnar CrossFit-sambandsins: Ekki óheppileg uppákoma fyrir okkur

Guðrún Linda Pétursdóttir, formaður stjórnar CrossFit-sambands Íslands, segist ekki orðið vitni að því þegar Hinrik Ingi Óskarsson hótaði starfsmönnum lyfjaeftirlits Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) barsmíðum eftir Íslandsmeistaramótið í CrossFit í Digranesinu í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×