Innlent

Úrskurðaður í fjögurra daga gæsluvarðhald

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hótel Ljósaland er í Saurbæ í Dalasýslu.
Hótel Ljósaland er í Saurbæ í Dalasýslu. vísir/loftmyndir
Héraðsdómur Vesturlands hefur úrskurðað mann sem grunaður er um íkveikju á Hótel Ljósalandi í Saurbæ í Dalasýslu í fjögurra daga gæsluvarðhald.

Maðurinn var handtekinn í gær grunaður um íkveikjuna en lögreglan var kölluð til á hótelið klukkan fimm í gærmorgun vegna ölvaðs manns sem gekk berserksgang við hótelið. Hálftíma síðar var tilkynnt að kviknað væri í hótelinu og voru slökkvilið kölluð út.

Eldurinn kom upp í nýbyggingu hótelsins sem ekki hefur verið tekin í gagnið. Heimamenn á næsta bæ urðu eldsins varir þegar þeir komu heim af þorrablóti.

Tjónið vegna brunans er mikið og hluti hússins fallinn. Engir gestir voru í byggingunni þegar kviknaði í henni og enginn slasaðist.

Rannsókn málsins er í höndum rannsóknardeildar lögreglunnar á Vesturlandi.


Tengdar fréttir

Eldur á hóteli í Dalasýslu

Slökkvilið hefur barist við eldinn á Hótel Ljósalandi í morgun. Mikið tjón er á húsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×