LAUGARDAGUR 25. MAÍ NÝJAST 06:00

Ný aðflugsljós við Ægisíðu nauðsynleg segir Jón Gnarr

FRÉTTIR

Úrin vinsæl hjá Íslandsvininum Eli Roth

Fréttablaðið Lífið 20. nóvember 2006 16:00
Úr Eli Roth mun endast í 100 ár að sögn úrsmiðsins. Sjálfur hefur hann verið að í 40 ár og er ekki á leiðinni að hætta.
Úr Eli Roth mun endast í 100 ár að sögn úrsmiðsins. Sjálfur hefur hann verið að í 40 ár og er ekki á leiðinni að hætta. MYND/RÓSA

Í verslun Gilberts Ó. Guðjónssonar úrsmiðs á Laugaveginum má fá íslensk gæðaúr, sem framleidd eru af syni Gilberts og tveimur samstarfsmönnum hans. Um er að ræða fyrstu íslensku úrin, en þau hafa ekki einungis notið vinsælda landsmanna, heldur vakið athygli Íslandsvinanna Eli Roth og Quentin Tarantino.

„Eli Roth var hjá okkur í síðustu viku og keypti tvö úr," sagði Gilbert í samtali við Fréttablaðið, en þetta er í annað skiptið sem leikstjórinn fjárfestir í úri hjá Gilbert. „Um áramótin síðustu komu hann og Quentin Tarantino og keyptu hvor sitt úrið. Það var frumgerðin. Þeir fengu úr númer þrjátíu og fjögur og þrjátíu og fimm," sagði Gilbert. „Núna var þetta þannig að dóttir mín hitti Eli á balli. Hún kannaðist við hann síðan um áramótin og spurði af hverju hann væri ekki með úrið.

Hann sagðist ekki hafa tímt að hafa úrið á sér í vinnunni, því hann var að taka upp í Bláa lóninu, en að það væri á dagskránni hjá honum að koma hingað aftur," sagði Gilbert, en svo fór að Eli mætti ásamt bróður sínum, Gabriel Roth, og Eyþóri Guðjónssyni, sem lék í Hostel. „Eli keypti úr handa bróður sínum í afmælisgjöf og fékk sér annað. Hann sagði einmitt að nú myndi Tarantino verða öfundsjúkur," sagði Gilbert, en íslenska úrið hans Tarantino hefur til dæmis fylgt honum í viðtalsþátt Conan O'Brien, sem nýtur mikilla vinsælda vestan hafs. „Þeir eru svo miklir Íslandsvinir. Maður þarf að átta sig á því að þetta er náttúrlega allt annar heimur hérna. Þeir geta gengið um göturnar óáreittir og finnst það alveg æðislegt," sagði Gilbert.

Úrin, sem kosta um 100.000 krónur, hafa notið mikilla vinsælda að sögn Gilberts. „Fólk er svo ánægt með þetta framtak og margir spyrja af hverju ég hafi ekki verið fyrir löngu búinn að gera þetta," segir Gilbert, sem hefur verið úrsmiður í fjörutíu ár og lofar því að úrin muni endast í að minnsta kosti 100 ár. Gangverk og aðrir hlutar úrsins eru fengnir að utan, en úrin eru svo sett saman á verkstæði Gilberts. „Ætli það sé ekki svona fjórir fermetrar, enda köllum við þetta minnsta úraframleiðslufyrirtæki í heimi," sagði Gilbert.is


Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Lífið 25. maí 2013 06:00

Ljótustu sandalarnir

Í vor- og sumarlínu tískuhússins Céline mátti sjá loðsandala og hælaskó úr litríku loði. Fótabúnaðurinn hefur skipt fólki í tvo hópa; þeim sem þykir skórnir flottir og skemmtilegir og svo þeir sem tel... Meira
Lífið 24. maí 2013 13:00

Brúðkaup og nýtt hús

Leikarinn Christian Slater ætlar að ganga að eiga unnustu sína Brittany Lopez í júlí. Hann gerði sér því lítið fyrir á dögunum og keypti nýtt hús þar sem brúðkaupið mun fara fram. Meira
Lífið 24. maí 2013 12:00

Ég vil ekki vera horuð

Leikkonan Jennifer Love Hewitt játar að hafa ekki alltaf verið ánægð með líkama sinn í nýjasta hefti Women's Running. Nú er hún hins vegar afar sátt í eigin skinni. Meira
Lífið 24. maí 2013 11:00

Djörf á dreglinum

Allra augu beindust að ofurfyrirsætunni Irinu Shayk á frumsýningu myndarinnar All is Lost á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Meira
Lífið 24. maí 2013 10:00

Litli, svarti kjóllinn klikkar seint

Leikkonurnar Jessica Lowndes og Eva Longoria eru stórglæsilegar í þessum svarta kjól frá Izmaylova. Meira
Lífið 24. maí 2013 09:00

Þetta hlýtur að vera sárt

Leikarinn Samuel L. Jackson var sultuslakur er hann spókaði sig um á setti myndarinnar Captain America: The Winter Soldier í Ohio. Samuel var með risastóra kúlu á höfðinu er hann kom sér í karakter Ni... Meira
Lífið 24. maí 2013 12:00

Eftirminnilegustu tónleikarnir með Múm

"Ég spilaði á einum eftirminnilegustu tónleikum ferils míns með Múm á Ítalíu. Þau eru alveg yndisleg. Meira
Lífið 23. maí 2013 14:45

Lét drauminn rætast og flutti út með fjölskylduna

"Ég fékk þá flugu í hausinn fyrir ári síðan að drífa fjölskylduna til Mílanó svo að ég gæti farið í fatahönnun. Allir samþykktu það," útskýrir Kolbrún Birna Halldórsdóttir. Meira
Lífið 23. maí 2013 13:00

Þetta borðar Beyoncé í kvöldmat

Poppdrottningin Beyoncé er nú á tónleikaferðalagi um heiminn og passar að borða hollt og gott til að halda sér í formi og vera full af orku. Meira
Lífið 23. maí 2013 12:00

Þvílík gyðja

Leik- og söngkonan Kylie Minogue toppaði sjálfa sig algjörlega á frumsýningu frönsku myndarinnar Les Salauds á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vikunni. Meira
Lífið 23. maí 2013 11:30

Megrunarkúr fræga fólksins

"Þessa aðferð er auðvelt að venja sig á og allir geta notað þennan kúr. Ekkert vesen eða auka matreiðsla. Bara borða minna í raun og veru," útskýrir Arnar Grant. Meira
Lífið 23. maí 2013 11:00

Vá, hvað hún er liðug!

Söngkonan Shakira er dugleg við að sýna danslistir sínar í tónlistarmyndböndum en hún fór gjörsamlega á kostum í viðtali á dögunum. Meira
Lífið 23. maí 2013 10:00

Ég er með appelsínuhúð á rassinum og maganum

Aðeins fimm vikur eru síðan leikkonan Malin Akerman eignaðist drenginn Sebastian en hún lét það ekki stöðva sig í að mæta á rauða dregilinn til að kynna nýjust sjónvarpsseríuna sína Trophy Wife. Meira
Lífið 23. maí 2013 09:00

Kaupir hús í skugga gjaldþrots

Fyrirsætan kjaftfora Janice Dickinson er flutt inn í glæsihús í Beverly Hills þó hún sé nánast gjaldþrota vegna skattskuldar. Húsið keypti unnusti hennar handa henni, læknirinn Robert Gerner. Meira
Lífið 23. maí 2013 14:00

Leikur móður ungs fórnarlambs

Óskarsverðlaunaleikkonan Reese Witherspoon leikur Pam Hobbs, móður ungs drengs sem myrtur var árið 1993, í kvikmyndinni Devil's Knot. Handrit myndarinnar er byggt á samnefndri bók eftir Mara Leveritt ... Meira
Lífið 23. maí 2013 13:00

Maðurinn sem braut niður hurðina

Í nokkur ár hlustaði ég á The Doors á hverjum degi. Meira
Lífið 23. maí 2013 12:45

Hrós handa ófrískum konum

"Það er ekki að sjá á þér að þú sért ólétt, ekkert nema kúlan bara.“ Þetta er eitt æðsta hrós sem líkami verðandi móður getur hlotið. Meira
Lífið 23. maí 2013 12:00

May þolir ekki The Voice

Queen-gítarleikarinn Brian May opinberaði andstyggð sína á raunveruleikaþættinum The Voice á heimasíðu sinni í vikunni. Meira
Lífið 23. maí 2013 12:00

Kósí bæjarbragur í Hafnarfirði

Alma er uppalin í Kópavogi en hefur búið í Hafnarfirði frá því hún var sautján ára gömul og segist líta á sig sem Hafnfirðing. „Það er dásamlegt að búa í Hafnarfirði. Það sem gerir bæinn svo sérstakan... Meira
Lífið 23. maí 2013 11:15

Efnileg vöðvabúnt

Hasarmyndin Fast and Furious 6 var frumsýnd í gær. Kvikmyndin skartar Vin Diesel og Dwayne Johnson í aðalhlutverkum. Vöðvabúntin eru bæði afar hæfileikaríkir menn og vita fáir að Johnson er með BA-grá... Meira
Lífið 23. maí 2013 11:00

Lítur á þetta sem flotta veislu

Tónlistarmaðurinn Pálmi Gunnarsson heldur ferilstónleika í Eldborgarsal Hörpu 7. september. Þar fer hann yfir söngferil sinn sem telur fleiri áratugi og fjölda smella. Meira
Lífið 23. maí 2013 11:00

Sautján línur í nýrri mynd Ryan Gosling er þögull í nýju myndinni.

Hjartaknúsarinn Ryan Gosling segir aðeins sautján línur í nýjustu mynd sinni Only God Forgives. Meira
Lífið 23. maí 2013 09:00

Ströng móðir

Madonna vill ekki að dóttir sín, hin sextán ára gamla Lourdes Leon, fari á stefnumót án umsjónarmanns. Meira
Lífið 23. maí 2013 07:00

Söngvari Diktu gefur út barnabók

"Ég sinni mjög mörgum börnum á heilsugæslunni þar sem ég er að vinna og þau eru oft að spyrja um hitt og þetta,“ segir Haukur Heiðar Hauksson, söngvari í Diktu. Hann hefur gefið út bókina Viltu ... Meira
Lífið 23. maí 2013 06:00

Ferskir og mjúkir vindar úr fortíðinni

Frönsku rafpoppararnir í Daft Punk hafa komið eins og stormsveipur inn í tónlistarheiminn með sinni nýjustu plötu, Random Access Memories, heilum átta árum eftir að síðasta hljóðversplata, Human After... Meira

Tarot

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Lífið - Yfir / Lífið / Úrin vinsæl hjá Íslandsvininum Eli Roth
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000