Skoðun

Úreltir stjórnmálamenn

Jón Þorvarðarson skrifar
Í nýjasta Terminator-tryllinum (2015) vellur upp úr Arnold Schwarzenegger í gervi vélmennisins T-800: „Ég er gamall, en alls ekki úreltur.“ Þetta hátækniundur hafði staðist tímans tönn með svo miklum ágætum að það átti í fullu tré við nýrri útgáfur af sjálfum sér.

Þegar ég heyrði þessa setningu velti ég því fyrir mér hvaða pólitíkus skyldi gera þessa setningu að sinni í nánustu framtíð. Ástæðan fyrir því að ég færi þetta í tal er sú að Jóhanna Sigurðardóttir stal – í það minnsta stældi – frægustu setningu T-800 þegar hún hrópaði yfir land og þjóð með kreppta hnefa: „Minn tími mun koma.“ T-800 var að vísu ögn hógværari þegar hann af miklu lítillæti sagði: „Ég mun koma til baka“.

Líkt og T-800 þá kom Jóhanna sannarlega til baka. Munurinn á þeim tveimur var hins vegar sá að þegar hún kom til baka, alla leið upp á hæsta tind, var hún orðin gamall og úreltur stjórnmálamaður. Óstraujaður með eldgamalt stýrikerfi.

Og ein eymdin bauð annarri heim þegar Jóhanna ákvað að stofna til samstarfs við annan gamlan og úreltan stjórnmálamann, óuppfærðan Steingrím J. Sigfússon. Sama versjón af Steingrími og við þekktum fyrir 30 árum síðan, engin nútíma niðurhöl, engin öpp. Blankur skjár. Gömlu jaxlarnir bitlausir.

Hvert var eitt af fyrstu og mikilvægustu verkefnum Steingríms? Jú, að hífa fornvin sinn Svavar Gestsson upp úr djúpi gleymskunnar og ýta á restart. Endurræstur draugur úr fortíðinni skyldi leiða samningaviðræður Íslands vegna Icesave-málsins. Enn á ný stofnuðu úreltir stjórnmálamenn til bræðralags. Haltur leiddi blindan. Forhertir gæjar sem aldrei hefur tekist að svara kalli tímans. Ef þeir skoðanabræður hefðu ráðið ferðinni þá væri þannig umhorfs í íslensku samfélagi (túrismans) að Ísland væri eina ríkið í Evrópu sem bannaði bjór. En það er önnur saga.

Og við hverju mátti búast af Svavari? Steingrímur, keyrður upp af gömlu forriti, kunni bara eitt svar og hljómaði eins og biluð grammafónplata þegar hann sagði: „Hann mun landa glæsilegri niðurstöðu fyrir okkur.“ En hver flýgur eins og hann er fiðraður, gamli refurinn „crashaði“ illilega í súlnasölum bresku krúnunnar og andstæðingarnir brostu kátbroslega niður í skeggið þegar samningar voru undirritaðir.

Leikritið hélt svo áfram að hætti úreltra stjórnmálamanna. Með undraverðum hætti tókst þeim næstum því að plata þjóðina með því að láta hið ranga sýnast rétt og hið rétta sýnast rangt. Líkt og Zenón sem reyndi að telja Forngrikkjum trú um að stríðshetjan Akkilles myndi aldrei ná skjaldbökunni í kapphlaupi, sama hversu lítið forskot hún hefði.

Af hverju er endalaust framboð af gömlum og úreltum stjórnmálamönnum á Íslandi? Af hverju komast þessir menn sífellt til æðstu metorða?




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×