Viðskipti erlent

Urban Outfitters biður starfsmenn um að vinna kauplaust

Sæunn Gísladóttir skrifar
Vegna anna í október hefur Urban Outfitters sent starfsmönnum sínum tölvupóst þar sem biðlað er til þeirra að vinna launalaust.
Vegna anna í október hefur Urban Outfitters sent starfsmönnum sínum tölvupóst þar sem biðlað er til þeirra að vinna launalaust. Vísir/Getty
Móðurfélag Urban Outfitters, URBN, sendi á dögunum starfsmönnum sínum póst þar sem þeir voru beðnir um að vinna kauplaust fimm helgadaga í október. 

Í tölvupóstinum sem má lesa hér segir að október sé annasamasti mánuður ársins hjá URBN, sem auk Urban rekur Free People og Anthropologie, því þarf URBN á hjálp þeirra að halda. URBN vill að starfsmennirnir pakki inn, sæki vörur og undirbúi pakka til útsendingar, launalaust. Í póstinum segir að þetta sé til að byggja upp teymið.

Þessi hegðun hefur hlotið nokkurra gagnrýni eftir að Gawker greindi frá málinu. Talsmaður URBN sagði hins vegar í svari til Gawker að starfsmennirnir væru spenntir yfir því að hjálpa til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×