Íslenski boltinn

Úr Víkingi í Víking

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Svensson lék fimm leiki með Víkingi R.
Svensson lék fimm leiki með Víkingi R. vísir/eyþór
Daninn Martin Svensson er genginn í raðir Víkings Ó. frá Víkingi R.

Svensson lék fimm leiki með Víkingi R. en tókst ekki að skora. Hann var rekinn af velli í bikarleik gegn Val þegar hann fékk tvö gul spjöld mínútu millibili og kom aðeins við sögu í einum leik eftir það.

Svensson, sem verður 27 ára í næsta mánuði, lék með dönsku liðunum Silkeborg, Randers, Viborg og Vejle áður en hann kom til Íslands í vor.

Víkingur Ó. er í 5. sæti Pepsi-deildarinnar með 18 stig eftir fyrri umferðina. Ólsarar fá Blika í heimsókn í næsta leik sínum á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×