Bíó og sjónvarp

Úr kvikmyndum í sjónvarp

Reese Witherspoon leikur á móti Kidman í þáttunum.
Reese Witherspoon leikur á móti Kidman í þáttunum.
Nicole Kidman og Reese Witherspoon, sem hingað til hafa gert garðinn frægan á hvíta tjaldinu, munu leika aðalhlutverkin í sjónvarpsþáttunum Big Little Liars.

Þeir eru byggðir á samnefndri metsölubók Liane Moriarty. Handritshöfundur þáttanna er reynsluboltinn David E. Kelley, að því er The Hollywood Reporter greinir frá.

Kidman og Witherspoon buðu í kvikmyndarétt bókarinnar og ætluðu upphaflega að gera bíómynd úr henni en ákveðið var að fara í sjónvarpið í staðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×