Menning

Úr gríninu í alvöruna

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Leikkonan Júlíana Sara Gunnarsdóttir fer með hlutverk í spennumyndinni Grimmd. Hér er hún ásamt Margréti Vilhjálmsdóttur.
Leikkonan Júlíana Sara Gunnarsdóttir fer með hlutverk í spennumyndinni Grimmd. Hér er hún ásamt Margréti Vilhjálmsdóttur. Vísir/GVA
„Það var virkilega skemmtileg tilbreyting að leika eina persónu og geta einbeitt mér algjörlega að henni, samanborið við hlutverk mín í Þær tvær þar sem við bregðum okkur í hlutverk fimm karaktera á einum tökudegi,“ útskýrir leikkonan Júlíana Sara Gunnarsdóttir þegar hún er spurð út í hlutverk sitt í spennumyndinni Grimmd eftir Anton Sigurðsson.

Flestir þekkja Júlíönu úr grínþáttunum Þær tvær sem sýndir eru á Stöð 2, en þar bregður Júlíana sér í fjölda gamanhlutverka ásamt Völu Kristínu Eiríksdóttur.

„Fjölbreytnin er það sem drífur mig áfram í leiklistinni. Það var mjög gaman að mæta á sett í allt aðra stemningu en ég er vön, þar sem grín og glens er allsráðandi. Þarna þurfti ég frekar að kúpla mig niður. Í rauninni er það þannig að þegar alvara málsins er jafn mikil og í Grimmd, þá detta allir sjálfkrafa í alvarlegri gír til að koma sögunni sem best til skila,“ segir Júlíana.

Grimmd er íslensk spennumynd sem segir frá hvarfi tveggja ungra stúlkna af leikvelli í Árbænum. Stúlkurnar finnast síðan látnar í Heiðmörk og hefst þá viðamikil rannsókn á málinu. Myndin fléttar saman nokkra söguþræði þegar hræðileg málsatvik koma upp á yfirborðið.

Flestir þekkja Júlíönu úr grínþáttunum Þær tvær sem sýndir eru á Stöð 2. fréttablaðið/gva
„Ég leik Karítas, metnaðarfulla rannsóknarlögreglukonu, sem þráir ekkert heitar en að leysa mál stúlknanna. Það dugir henni ekki að finna bara sökudólginn, heldur vill hún vita ástæðuna að baki verknaðinum.“ Júlíana segir að auðvelt hafi verið að samsama sig karakternum.

„Karítas lítur upp til samstarfskonu sinnar, Eddu, sem er algjör reynslubolti í faginu. Edda er leikin af Margréti Vilhjálmsdóttur og þar sem ég lít mikið upp til Möggu í leiklistinni var þetta lítið mál,“ segir hún og bætir við: „Ég var alltaf full tilhlökkunar að mæta í vinnuna.“ Næg verkefni eru fram undan hjá Júlíönu en hún er að vinna í eigin verkefnum ásamt því að vera ólétt að sínu öðru barni sem væntanlegt er í heiminn í mars.

„Það er mikil hugmyndavinna í gangi þessa dagana. Svo eru alltaf spennandi verkefni í pokahorninu. Einnig eru árshátíðir og jólahlaðborð að fara að skella á þannig að það er nóg um að vera í veislustjórnun næstu mánuði. Svo er ég ófrísk að mínu öðru barni sem þýðir að það eru spennandi og skemmtilegir tímar fram undan,“ segir hún að lokum. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 29. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×