Enski boltinn

Úr frystinum í Napoli á suðurströndina á Englandi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gabbiadini hefur leikið sex landsleiki fyrir Ítalíu.
Gabbiadini hefur leikið sex landsleiki fyrir Ítalíu. vísir/getty
Southampton keypti í gær ítalska framherjann Manolo Gabbiadini frá Napoli.

Gabbiadini, sem er 25 ára, kostaði Southampton um 14 milljónir punda. Hann skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við félagið.

Gabbiadini lék með Napoli í tvö ár og skoraði 24 mörk í 76 leikjum. Tækifærin voru þó af skornum skammti undir það síðasta en Gabbiadini byrjaði síðast deildarleik í nóvember.

Auk Napoli lék Gabbiadini með Atalanta, Cittadella, Bologna og Sampdoria á Ítalíu. Hann hefur leikið sex leiki fyrir ítalska landsliðið og skorað eitt mark.

Southampton hefur gengið illa að skora í vetur en aðeins þrjú lið hafa skorað færri mörk í ensku úrvalsdeildinni en Dýrlingarnir.

Southampton tapaði 2-1 fyrir Swansea City í gær. Það var fjórða tap liðsins í síðustu fimm deildarleikjum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×