Matur

Í eldhúsi Evu: Grillaður lax með sítrónu, kirsuberjatómötum og hvítlauk

Eva Laufey skrifar
Lax er frábær á grillið.
Lax er frábær á grillið. Eva Laufey

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að æðislegum rétti á grillið.

Grillaður lax með sítrónu, kirsuberjatómötum og hvítlauk

700 g lax, beinhreinsaður

1 msk ólífuolía

salt og pipar

1 hvítlauksrif

10 kirsuberjatómatar

sítróna

1 ½ dl fetaostur

1 msk graslaukur, smátt saxaður



Aðferð:

Skerið laxinn í jafn stóra bita og raðið honum í álbakka eða á álpappír, dreifið olíu yfir laxinn og kryddið með salti og pipar. Rífið niður eitt hvítlauksrif, skerið niður tómata og graslauk og dreifið yfir laxinn.

Skerið sítrónu í sneiðar og leggið eina sneið yfir hvern bita ásamt því að mylja fetaost yfir í lokin. Grillið í 5 – 7 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn.



Grillaður aspas

Ferskur aspas

Ólífuolía

Sítrónusafi

Salt og pipar

Smjör



Aðferð:

Snyrtið aspasinn vel og skerið trénaða hlutann af, það er gott ráð að beygja aspasinn og sjá hvar hann brotnar, það er semsagt trénaði hlutinn sem við viljum losna við.

Sáldrið ólífuolíu yfir aspasinn ásamt sítrónusafa, kryddið til með salti og pipar. Grillið aspasinn í örfáar mínútur og um leið og hann er tilbúinn þá er hann tekinn af grillinu og blandaður saman við smá smjörklípu. Það er einnig æðislegt að rífa niður ferskan parmesan og bera fram með grilluðum aspas.



Létt og góð grillsósa

2 dl majónes

180 g sýrður rjómi

1 hvítlauksrif

safi úr hálfri sítrónu

1 tsk hunang

1 msk smátt saxaður graslaukur

¼ tsk sítrónupipar

salt og pipar



Aðferð:

Blandið öllum hráefnum saman í skál eða notið matvinnsluvél til þess að fá enn fínni útgáfu að sósunni.

Það er afar gott að kæla sósuna aðeins áður en hún er borin fram.

Gjörið svo vel!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×