Innlent

Úr berjatínslu í björgunaraðgerðir: Björguðu pari og barni þeirra úr sjónum

Kolbeinn Tumi Daðason og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa
Hjónin Bryndís Sævarsdóttir og Einar Þórarinn Magnússon úr Reykjanesbæ komu ferðamönnum, pari með tveggja ára barn, til bjargar á Barðaströnd á Vestfjörðum í gær.
Hjónin Bryndís Sævarsdóttir og Einar Þórarinn Magnússon úr Reykjanesbæ komu ferðamönnum, pari með tveggja ára barn, til bjargar á Barðaströnd á Vestfjörðum í gær. Vísir/Loftmyndir
Hjónin Bryndís Sævarsdóttir og Einar Þórarinn Magnússon úr Reykjanesbæ komu ferðamönnum, pari með tveggja ára barn, til bjargar á Barðaströnd á Vestfjörðum í gær. Af frásögn Bryndísar u.m málið á Facebook má ráða að Einar hafi komið auga á hreyfingu í flæðarmálinu. Í ljós kom að bíll hafði farið í sjóinn og var kominn í kaf.

Bryndís segir Einar hafa náð fólkinu úr sjónum en aðstæður hafi verið erfiðar, ekki síst sökum þess að símasamband var afar lélegt. Hjónin óku með parið og litla barnið á móti sjúkrabíl sem kom á móti þeim frá Búðardal.

„Ótrúleg lukka að þau séu heil á húfi,“ segir Bryndís. Læknir á Búðardal staðfestir í samtali við Vísi að um erlenda ferðamenn hafi verið að ræða og þau hafi sloppið ótrúlega vel. Þau vörðu nóttinni á Búðardal og héldu ferðalagi sínu áfram í morgun eftir skoðun læknis.

Í samtali við Mbl segir Einar að hann hafi tekið eftir manni í flæðarmálinu með lítið barn liggjandi ofan á sér. Stökk Einar út úr bílnum og í fjöruna til þess að aðstoða manninn. Konu mannsins tókst einnig að koma sér úr bílnum og aðstoðaði Einar hana síðustu metrana í land.

Með hjálp vörubílstjóra sem stöðvað hafði bíl sinn við slysstað tekist að ná sambandi við Neyðarlínuna og var ákveðið að Einar og Bryndís myndu keyra parið og barn þeirra til móts við sjúkrabíl sem var á leiðinni frá Búðardal þar sem þau hlutu aðhlynningu.

Bryndís og Einar, sem eru við berjatínslu á Vestfjörðum, eru utan þjónustusvæðis í augnablikinu en stefnan hafði verið að tína ber í dag, „en ekki fólk“ eins og Bryndís kemst að orði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×