Lífið

Úr atvinnuþrasi í háskólanám

Elín Albertsdóttir skrifar
Erna Hauksdóttir er virkilega sátt við þá ákvörðun sína að hætta sem talsmaður ferðaþjónustunnar og fara í háskólanám. "Maður þarf að finna sér eitthvað áhugavert að gera við starfslok,“ segir hún.
Erna Hauksdóttir er virkilega sátt við þá ákvörðun sína að hætta sem talsmaður ferðaþjónustunnar og fara í háskólanám. "Maður þarf að finna sér eitthvað áhugavert að gera við starfslok,“ segir hún. MYND/ERNIR
Erna Hauksdóttir var rödd ferðaþjónustunnar í áratugi en ákvað fyrir ári að skipta um gír í lífinu og fara í háskólanám. Hún segir að það hafi verið góð ákvörðun, íslenskan hafi lengi verið áhugamál sitt.

Erna var nær daglegur gestur í fréttatímum en hvarf síðan skyndilega á braut. Hún var framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar frá árinu 1998 og þar á undan hjá Sambandi veitinga- og gistihúsa frá árinu 1985. Hún átti því langan og farsælan feril að baki í erilsömu starfi. „Ég ákvað að hefja háskólanám í íslensku. Ég hef alltaf haft áhuga á íslensku máli og langaði að kynnast því betur. Ekki endilega til að fá gráðu heldur fremur til skemmtunar. Ég er nýbúin að ljúka prófum og hef haft óskaplega gaman af náminu, enda alltaf þótt gaman í skóla. Það er svo gaman að koma aftur í háskólann eftir þrjátíu ár en ég útskrifaðist þaðan í viðskiptafræði á sínum tíma. Þá var ein tölva í húsinu og hún tók heilt herbergi,“ segir Erna. „Svo á ég alveg eftir að ákveða hvað ég geri í framtíðinni,“ segir hún glettin.

Á tímamótum

„Mig langaði í öðru vísi líf. Ég er nýkomin á löggiltan eftirlaunaaldur og vil mæla með því að fólk finni sér einhver áhugamál til að fást við á þeim tímamótum. Það var dásamlegt að byrja aftur í skóla og hella sér út í námið. Ég var búin að vera atvinnuþrasari, eins og ég segi stundum, í næstum þrjátíu ár. Það var orðið nóg. Bæði fannst mér ágætt fyrir mig að skipta um hlutverk og

einnig gott fyrir samtökin að fá nýja ásýnd. Þetta var því hárrétt ákvörðun. Mér þótti engu að síður alltaf gaman í vinnunni. Svo kemur að þeim tímapunkti að breytinga er þörf. Mig langaði allt í einu að fara að gera eitthvað allt annað.“

Lúxusvandamál

Erna segist hafa fylgst með umræðunni um ferðaþjónustuna þótt hún hafi sagt skilið við hana. „Stundum hugsa ég bara um það sem ég er að gera þá stundina og nenni þá ekki að lesa blöðin. Það er mikill lúxus fyrir mig að geta sleppt því. Það er sömuleiðis mikill lúxus að þurfa ekki að hafa skoðanir á öllum hlutum. Nú get ég haft þá skoðun sem mér sýnist,“ segir Erna og hlær en óneitanlega fylgdi töluvert fjölmiðlakarp starfi hennar hjá ferðaþjónustunni.

„Ég er að langflestu leyti ánægð með þróunina í ferðamálum á Íslandi. Sérstaklega er ég ánægð með það verkefni sem við lögðum mikla áherslu á síðustu árin áður en ég hætti. Það var að auka ferðaþjónustuna yfir vetrartímann. Ég er þess vegna voða glöð og stolt þegar ég sé að 31% aukning hafi orðið á komu ferðamanna í nóvember. Áður fyrr fór allur sumarágóðinn í að reyna að halda fyrirtækjunum opnum yfir veturinn. Þessi mikla aukning á veturna er mikið gleðiefni.“

Erna er mikil fjölskyldumanneskja og hefur yndi af því að fá fólk í mat. Hún á tvö börn og sjö barnabörn.MYND/ERNIR
Gjald inn í landið

„Það sem mér finnst ekki hafa gengið nægilega vel er uppbygging helstu ferðamannastaða og verndun þeirra. Við höfum rætt þetta vandamál í mörg ár en voðalega lítið hefur breyst til batnaðar. Það hefði átt að setja þetta mál í einhvern farveg fyrir löngu. Ferðaþjónustan skilar miklu í þjóðarbúið og þessir hlutir eiga að vera í lagi. Við vorum búin að ræða lausnir fram og til baka, þar á meðal náttúrupassa, en engin leið virðist góð. Það vill engin ein atvinnugrein í ferðaþjónustu taka að sér að innheimta skatt. Ekki hótel né heldur flugfélög. Það er ósköp eðlilegt að enginn vilji hækka hjá sér verð til að innheimta skatt. Ég hef þó alltaf talið bestu lausnina að selja inn í landið. Það virðist vera erfitt að koma því á vegna ESB en við ættum að taka þann slag engu að síður. Einfalt er að framkvæma gjaldtöku á þann hátt og mikilvægt að gjaldið sé lágt. Þetta mál er eitthvert það flóknasta sem við höfum haft á borðinu og engin einföld leið sjáanleg.“

Amman og matarboðin

Erna á sjö barnabörn og hefur mikla ánægju af því að stússast með þeim. „Þau koma mikið hingað til okkar,“ segir Erna en hún er gift Júlíusi Hafstein, sendiherra og fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. „Ég er hefðbundin þegar kemur að jólahaldi. Það hafa verið rjúpur á borðum á aðfangadag frá því ég man eftir mér og svo var einnig núna. Við erum svo heppin að hafa veiðimenn í fjölskyldunni. Við breyttum fyrirkomulaginu hjá okkur fyrir þremur árum þegar börnin okkar kusu að vera á sínu heimili á aðfangadag. Við hjónin borðum heima en förum síðan í heimsóknir til barnanna eftir matinn og skiptumst á gjöfum. Tengdaforeldrar mínir gerðu þetta líka á sínum tíma og mér fannst það alltaf sniðugt. Þá fær maður að upplifa jólin með börnum sínum og barnabörnum.

Á jóladagskvöld er ég alltaf með tuttugu manns í mat, fjölskyldu Júlíusar og börnin okkar. Þá býð ég upp á kalkúnabringur. Á gamlárskvöld koma bræður mínir til okkar og við eldum saman. Við erum ekki búin að ákveða hvað verður í matinn núna,“ segir Erna. „Við tökum garðhúsgögnin inn í stofu og þá geta allir setið til borðs. Það er óskaplega skemmtileg stemning. Í mínum huga snúast jólin um samveru fjölskyldunnar. Ég kem úr stórri fjölskyldu og vil hafa marga í mat,“ segir Erna enn fremur en hún hefur gaman af matseld og er frábær kokkur. „Börnin mín og barnabörn koma oft til okkar í mat.“

Gaman að ferðast

Þegar Erna er spurð hvað sé henni minnisstæðast frá árinu sem er að líða, svarar hún: „Ætli það sé ekki þegar sjöunda barnabarnið kom í heiminn. Það eru alltaf mikil gleðitíðindi. Svo er auðvitað æðislegt að vera kominn aftur í háskóla. Það er gaman að sjá allar þessar rafrænu breytingar sem orðið hafa í skólastarfinu. Ég hef líka ferðast mikið á árinu sem hefur í alla staði verið frábært. Okkur finnst gaman að ferðast, sérstaklega til Spánar, Frakklands og Ítalíu. Í haust fórum við í lítið sveitaþorp á Spáni þar sem bróðir minn hélt upp á sextugsafmæli sitt. Það var virkilega ánægjulegt. Ég tel að það sé afar mikilvægt að hafa eitthvað fyrir stafni þegar maður hættir að vinna og gera eitthvað skemmtilegt,“ segir hún.

„Einn af hápunktum ársins var þegar bókin „Það er kominn gestur“ kom út á vegum SAF í nóvember. Þetta er saga ferðaþjónustunnar, mjög flott bók sem ég fékk að fylgja fram að útgáfunni en okkur hefur lengi langað til að leggja í slíkt verk. Á næsta ári vonast ég til þess að við getum haldið verðbólgunni í skefjum, að það verði þokkalegur vöxtur í þjóðfélaginu og lítið atvinnuleysi. Sjálf hef ég bara væntingar um áframhaldandi skemmtilegt líf á næsta ári með fjölskyldu og vinum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×