Bíó og sjónvarp

Uppvakningar á Reykjanesinu

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Dauðir munu rísa - Ógnvænleg afturganga í zombie island.
Dauðir munu rísa - Ógnvænleg afturganga í zombie island. mynd/skjáskot
„Það er spurning um að koma henni í bíó, ef við náum að fylla sal þrisvar þá fáum við kannski meiri tíma. Annars er það bara Pirate Bay, er það ekki?“ segir Marteinn Ibsen, leikstjóri hrollvekjunnar Zombie Island. Aðstandendur hennar halda nú úti söfnun á vefsíðunni Karolina Fund til að fjármagna eftirvinnsluna en myndin var tekin upp árið 2012 að mestu án nokkurs fjármagns.

Zombie Island er uppvakningamynd sem gerist á Íslandi og er að mestu tekin upp á ensku með íslenskum leikurum. Hún gerist á Reykjanesi og snýst um veiðimann sem vaknar með algjört minnisleysi í miðjum uppvakningafaraldri.

Marteinn Ibsen, leikstjóri Zombie Island gerði myndina með æskuvinunum.mynd/kári jóhannsson
Er hann ferðast dýpra inn í vírussýkta bæi Reykjanesskaga safnar hann saman eftirlifendum og reynir að finna leið af eyjunni ásamt mótefni við vírusnum. „Handritið er skrifað upp úr hruninu en þetta er eiginlega ádeila á hrunið og allt í kringum það,“ segir Marteinn.

Aðstandendur myndarinnar eru æskuvinir. „Við Halldór Jón Björgvinsson, meðframleiðandi og leikari í myndinni og Guðmundur Ingvar Jónsson aðalleikari höfum verið að gera stuttmyndir síðan við vorum unglingar. Svo upp úr því að við fórum í Kvikmyndaskólann fór þetta að vera meira svona „pro“, segir hann.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×