Sport

Uppselt í stæði fyrir einkaþotur

Hér þurfti lagni við að leggja þessum einkaþotum.
Hér þurfti lagni við að leggja þessum einkaþotum. mynd/twitter
Það var aðeins pláss fyrir þotuliðið á bardaga Floyd Mayweather og Manny Pacquiao og það mætti allt á einkaþotum.

Það var hreinlega uppselt á svæðinu fyrir einkaþotur í Las Vegas. Vélum var raðað saman eins og lego-kubbum væng í væng.

Menn sögðust aldrei hafa séð annað eins á flugvellinum í Las Vegas.

Aðeins 1.000 miðar fóru í almenna sölu af 16.500. Það var því gefið að fína og fræga fólkið myndi sitja að miðunum í salinn.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×