Lífið

Uppselt á Eistnaflug

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Neskaupstað í dag.
Frá Neskaupstað í dag. Vísir/Gunnar Reynir
Síðasti miðinn hefur verið seldur á tónlistarhátíðina Eistnaflug sem nú stendur yfir á Neskaupstað. Á Fésbókarsíðu hátíðarinnar kemur fram að um metsölu sé að ræða en hátíðin fór fyrst fram árið 2004. Miðalausir ferðalangar eru varaðir við því að ferðast austur. Enginn miði sé í boði.

Veður er virkilega gott á Austfjörðum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Tónleikar hafa farið fram frá því í hádeginu en í kvöld spila meðal annars Brain Police, Sign og At the Gates.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×