Innlent

Uppsagnir á Tálknafirði reiðarslag fyrir samfélagið

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
26 starfsmönnum Þórsbergs í Tálknafirði var sagt upp störfum í fyrradag.
26 starfsmönnum Þórsbergs í Tálknafirði var sagt upp störfum í fyrradag. vísir/pjétur
„Fólk er að taka þessu mjög illa en marga grunaði að það væri eitthvað í gangi,“ segir einn þeirra 26 starfsmanna sem sagt var upp störfum hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Þórsbergi á Tálknafirði í fyrradag.

Þórsberg er stærsti einstaki vinnuveitandi á Tálknafirði. Í tilkynningu fyrirtækisins segir að þetta hafi verið gert vegna versnandi rekstrarumhverfis í útgerð og bolfiskvinnslu.

„Við vorum kölluð saman og okkur öllum sagt upp nema skrifstofufólki og verkstjórum. Þetta er mjög slæmt í svona litlu samfélagi því það er ekki margt í boði. Þó að þú gætir hugsanlega fengið vinnu á Patreksfirði þá er meira en að segja það að keyra þangað að vetri til,“ segir starfsmaðurinn og bætir við að hann hafi ekki hugmynd um hvað taki við. „Ég veit að langfæstir hafa hugmynd um það hvað þeir fari að gera.“

Fréttablaðið hafði samband við aðra starfsmenn Þórsbergs en af ótta við að verða útskúfað úr samfélaginu á Tálknafirði vildi enginn koma fram undir nafni. „Það er ein fjölskylda á Tálknafirði sem ræður ríkjum og hefur alltaf gert það. Ef maður segir eitthvað á móti hennar hagsmunum fær maður að kenna á því. Þetta er þannig samfélag að það má ekki hundur pissa út í garði þá vita allir það um leið.“

Sveitarstjórinn í Tálknafirði, Indriði Indriðason, og stjórnendur Þórsbergs hittust á fundi í gær og fóru yfir stöðu mála. Að sögn Indriða er verið að leita lausna á vandanum. „Menn eru með hugmyndir og mér finnst þær líta nokkuð vel út. Ég get því miður ekki farið nánar út í þær að svo stöddu.“

Indriði segir uppsagnirnar vera reiðarslag fyrir samfélagið. „Ég er þó vongóður um að ástandið blessist. Mér sýnist allir á svæðinu snúa bökum saman til þess að reyna finna lausn á vandanum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×