Innlent

Uppræta þurfi kennitöluflakk án þess að kæfa frumkvöðlastarfsemi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Fréttablaðið/GVA
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra stendur við orð sín um að styðja ekki við frumvarp þingmanns Framsóknarflokksins gegn kennitöluflakki, en meðal annars hefur ASÍ lýst furðu yfir viðbrögðum hennar. Hún segir íslenskt atvinnulíf geta misst af ákveðnum tækifærum með slíku frumvarpi.

Alþýðusamband Íslands lýsti í vikunni yfir furðu vegna viðbragða Ragnheiðar Elínar Árnadóttir iðnaðarráðherra, við frumvarpi sem lagt var fram á Alþingi í vikunni til að stemma stigu við kennitöluflakki.  Ragnheiður sagðist ekki styðja frumvarpið, það væri of íþyngjandi, ekki síst fyrir nýsköpunarfyrirtæki þar sem menn þurfi oft á tíðum að gera margar tilraunir með rekstur, líkt og hún orðaði það.

„Vandinn við þetta frumvarp er sá að í fyrsta lagi eru menn ekki, og ég er ekki sannfærð, um að þetta muni uppræta þetta mein vegna þess að þeir sem verið er að reyna að ná til sem stunda kennitöluflakk, sem er annað heldur en að fara í gjaldþrot, það er ekki ólöglegt að fara í gjaldþrot þegar rekstur af einhverjum ástæðum mistekst. Kennitöluflakk er það athæfi sem fólk stundar með einbeittan brotavilja að skilja eftir skuldir og skuldbindingar og færa eignir yfir í nýtt félag og halda svo áfram. Ég er ekki sannfærð um að þetta frumvarp nái til þess,” sagði Ragnheiður í Bítinu á morgun.

Flutningsmenn frumvarpsins voru fulltrúar allra flokka á Alþingi, annarra en Sjálfstæðisflokksins, en málið er frá Karli Garðarssyni, þingmanni Framsóknarflokksins, komið. Þar era ð meginefni lagt til að stofnendur, stjórnarmenn og framkvæmdastjórar hlutafélaga megi ekki á næstliðnum þremur árum hafa verið í forsvari fyrir tvö eða fleiri félög sem orðið hafa gjaldþrota.

Ragnheiður segir að vissulega þurfi að uppræta kennitöluflakk, en að ekki megi kæfa frumkvöðlastarfsemi. Þannig sé íslenskt atvinnulíf að missa af tækifærum sem samfélag.

„Við þurfum að ná þeim sem eru að stunda ólöglega athæfið en ekki kæfa frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun og athafna sig í íslensku atvinnulífi vegna þess að þá erum við að missa af tækifærum sem samfélag,” segir hún.

Viðtalið við Ragnheiði má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Reyna að sporna gegn kennitöluflakki

Þingmenn fjögurra flokka leggja fram frumvarp um að stjórnarmenn og framkvæmdastjórar megi ekki vera í forsvari tveggja fyrirtækja, eða fleiri, sem hafi orðið gjaldþrota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×