Innlent

Uppnám á vinnumarkaði ef allir elta gerðardóm

Höskuldur Kári Schram skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vísir/valli
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir uppnám blasa við á vinnumarkaði ef öll verkalýðsfélög á landinu ætla að elta niðurstöðu gerðardóms. Hann vonast til þess að hægt verði að kalla SALEK hópinn saman á ný og fresta boðuðum verkfallsaðgerðum.

Boðað hefur verið til samningafundar í kjaradeilu SFR, sjúkraliða og lögreglumanna við ríkið á morgun en boðaðar verkfallsaðgerðir eiga að hefjast eftir rúman sólahring.

Verkfallið nær til nærri fimm þúsund opinberra starfsmanna og mun hafa veruleg áhrif á fjölmargar stofnanir.

Staðan var meðal annars rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun en félögin hafa miðað sínar kröfur við niðurstöðu gerðardóms frá því í sumar.

Forsætisráðherra segist hafa mikinn skilning á stöðu og kröfu þessara félaganna.

„Á sama tíma er gríðarlega mikilvægt að það verði ekki samið með þeim hætti að það setji allt í uppnám. Því að gerðardómur tók til 3 prósenta fólks á vinnumarkaði og við megum ekki missa hin 97 prósentin inn í algjört uppnám núna þegar það er tækifæri til að bæta kjör allra verulega. Það þarf líka að hafa í huga að þessar mikilvægu undirstöðustéttir dragist ekki aftur úr öðrum,“ segir Sigmundur Davíð.

Sigmundur vill að SALEK hópurinn svokallaði verði kallaður saman á ný. Hópurinn, sem var skipaður aðilum vinnumarkaðarins, hafði það markmið að ná fram stöðugleika í launaþróun. Viðræður sigldu í strand í byrjun þessa mánaðar en Sigmundur segir að ríkisstjórnin sé tilbúin til að beita sér fyrir því að viðræður geti hafist á ný.

„Það væri æskilegt ef hægt væri að ná saman um frestun [verkfallsaðgerða] á meðan SALEK hópurinn tekur aftur upp þráðinn. Án þess að maður sé að fara fram á einhverja eftirgjöf á kröfum. Þessi vinna hafði skilað árangri og ég held að það væri þess virði að reyna það aftur,“ segir Sigmundur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×