Erlent

Upplýsingum um flugfarþega safnað

guðsteinn bjarnason skrifar
Ítarlegum upplýsingum verður safnað í miðlægan gagnagrunn, nái tillagan fram að ganga.
Ítarlegum upplýsingum verður safnað í miðlægan gagnagrunn, nái tillagan fram að ganga. fréttablaðið/AP
Áform framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að safna og geyma í fimm ár ítarlegar upplýsingar um flugfarþega hafa sætt gagnrýni fyrir að taka lítið tillit til sjónarmiða persónuverndar.

Hugmyndin er sú að um hvern einasta flugfarþega verði skráðar upplýsingar í 42 liðum. Þar á meðal er nafn, heimilisfang, vegabréfsnúmer, greiðslumáti, upplýsingar um farangur og óskir um fæðuval í flugi, svo fátt eitt sé nefnt. Þessar upplýsingar verði dulkóðaðar eftir sjö daga, en síðan geymdar í miðlægum gagnagrunni í fimm ár til þess að lögregla og önnur yfirvöld öryggismála geti fengið aðgang að þeim.

Breska dagblaðið The Guardian skýrði frá þessum áformum í gærmorgun, en framkvæmdastjórnin hugðist svo kynna þau innan tíðar.

„Það er augljóst brot á grundvallarréttindum að safna á einu bretti upplýsingum um alla farþega,“ hefur The Guardian eftir Jan Philipp Albrecht, sem er varaformaður borgararéttindanefndar Evrópuþingsins. Hann segir þessa stórtæku upplýsingasöfnun hvort eð er ekki hafa mikið gildi, heldur sé hún fyrst og fremst sýndaraðgerð á kostnað réttinda almennings auk þess sem hún dragi í reynd úr öryggi fólks.

„Í staðinn fyrir heildarsöfnun farþegaskráninga, þá þurfum við að fylgjast með einstaklingum, sem grunur fellur á, og flugferðum, sem áhættusamar geta talist,“ segir hann.

Upphaflega koma þessar hugmyndir frá innanríkisráðherrum Evrópusambandsins, en þær mættu töluverðri andstöðu á Evrópuþinginu. Fyrir tveimur árum voru þessi áform því lögð á hilluna, en tillögur framkvæmdastjórnarinnar eru sagðar málamiðlun sem hægt væri að ná samstöðu um.

The Guardian segir að þessi málamiðlun hafi náðst þegar innanríkisráðherrar Evrópusambandsins hittust í París, daginn sem fjölmenn samstöðuganga var haldin í tilefni af morðunum á ritstjórn skoptímaritsins Charlie Hebdo og víðar í París.

Þar hafi breski innanríkisráðherrann Theresa May, en hún hefur talað einna ákafast fyrir þessum áformum, fallist á að nú sé helsta forgangsatriðið að afla meiri stuðnings við þau innan Evrópuþingsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×