Viðskipti innlent

Upplýsingamiðstöð ferðamanna opnuð í Ráðhúsinu

atli ísleifsson skrifar
Miðstöðin er sá staður í Reykjavík þar sem flestir erlendir ferðamenn hafa viðkomu.
Miðstöðin er sá staður í Reykjavík þar sem flestir erlendir ferðamenn hafa viðkomu. höfuðborgarstofa
Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík var opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Miðstöðin hefur verið starfrækt í Aðalstræti 2 frá árinu 2002.

Í tilkynningu frá Höfuðborgarstofu segir að flutningur miðstöðvarinnar sé liður í því að nýta húsnæði í eigu borgarinnar enn betur og auka þjónustu í Ráðhúsi Reykjavíkur.

„Miðstöðin er á jarðhæð Ráðhússins þar sem gönguás liggur í gegnum húsið en hann er hugsaður sem hluti af göngustígakerfi borgarinnar, þar sem almenningur getur komið saman og fylgst með því sem um er að vera í húsinu hverju sinni. Jarðhæð hússins er því tilvalin staðsetning fyrir upplýsingamiðstöðina.

Að jafnaði starfa níu manns hverju sinni í miðstöðinni og er hún opin alla daga ársins frá kl. 8.00-20.00 nema á jóladag. Opnunartími Ráðhússins mun því lengjast sem því nemur.

Reykjavíkurborg og Höfuðborgarstofa reka Upplýsingamiðstöð ferðamanna með styrk frá Ferðamálastofu og nú í samstarfi við fyrirtækið Guide to Iceland. 

Miðstöðin er sá staður í Reykjavík þar sem flestir erlendir ferðamenn hafa viðkomu og margir ákveða í framhaldinu hvernig Íslandsheimsókninni verði best varið. Á síðasta ári fengu 475.000 ferðamenn aðstoð og þjónustu á Upplýsingamiðstöðinni í Aðalstræti sem var 28% fjölgun frá árinu áður og hafa þeir aldrei verið fleiri,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×