Sport

Upphitun fyrir UFC on Fox: Werdum vs. Browne

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Werdum (til vinstri) og Browne (til hægri)
Werdum (til vinstri) og Browne (til hægri) Vísir/Getty
Annað kvöld fer UFC on Fox: Browne vs. Werdum fram í Orlandó í Flórída. Í aðalbardaga kvöldsins mætast þungavigtarmennirnir Fabricio Werdum og Travis Browne. Bardagarnir eru í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin á miðnætti.

Travis Browne (16-1-1) gegn Fabricio Werdum (17-5-1) - þungavigt

Aðalbardagi kvöldsins mun úrskurða um hver verði næsti áskorandi á þungavigtarmeistarann Cain Velasquez. Hér mætast tveir frábærir þungavigtamenn og bendir allt til þess að þetta verði frábær bardagi.

Travis Browne er 32 ára, frá Hawaii og rúmlega tveir metrar á hæð. Hann er gríðarlega höggþungur en hann hefur sigrað 12 af 16 bardögum sínum með rothöggi. Fáir bjuggust við að Browne myndi ná svona langt í UFC en í öllum UFC bardögum sínum hafa andstæðingar hans ávallt þótt sigurstranglegri hjá veðbönkum.

Browne hefur sigrað síðustu þrjá bardaga sína eftir rothögg í fyrstu lotu. Browne er þekktur fyrir stórhættuleg olnbogaskot upp við búrið og rotaði hann bæði Josh Barnett og Gabriel Gonzaga á þann hátt.

3 atriði til að hafa í huga fyrir bardagann

  • Mun reyna að halda bardaganum standandi
  • Hefur aldrei verið tekinn niður í UFC
  • Þolir miklar barsmíðar
Fabricio Werdum er besti uppgjafarglímumaður í þungavigtinni í dag. Hann er margfaldur heimsmeistari í brasilísku jiu-jitsu og tvöfaldur meistari á ADCC (sterkasta uppgjafarglímumót heims). Hann var fyrsti maðurinn til að sigra Fedor Emelianenko í 10 ár þegar hann sigraði hann eftir “triangle” hengingu í fyrstu lotu. Fram að því hafði Emelianenko ekki tapað í 28 bardögum og er þetta því hans stærsti sigur. Werdum átti að fá titilbardaga eftir sigur sinn á Antonio “Big Nog” Nogueira í fyrra en þar sem meistarinn, Cain Velasquez, var frá vegna meiðsla vildi hann berjast aftur og mætir því Travis Browne.

3 atriði til að hafa í huga fyrir bardagann

  • Einn besti gólfglímumaður heims
  • Setur ekki upp spörkin sín sem gæti reynst hættulegt gegn Browne
  • Hefur stórbætt sparkboxið sitt á síðustu tveimur árum
Miesha Tate (13-5) gegn Liz Carmouche (9-4) – bantamvigt kvenna (61 kg)

Eini kvennabardagi kvöldsins er ekki af verri endanum en þar mætast tvær af þekktustu bardagakonum UFC.

Miesha Tate hefur tvisvar barist við Ronda Rousey um titil, fyrst í Strikeforce og svo í UFC, en tapað í bæði skiptin eftir “armbar” í fyrstu lotu. Hún þykir hörð í horn að taka og hefur bardagi með henni ekki farið í dómaraákvörðun síðan 2010.

3 atriði til að hafa í huga fyrir bardagann

  • Góðar fellur
  • Gott “ground’n’pound”
  • Villt box
Liz Carmouche hefur einnig barist við meistarann en tapaði eins og Tate eftir “armbar” í fyrstu lotu. Hún var í bandaríska hernum og þykir ein af sterkari konum UFC í dag.

3 atriði til að hafa í huga fyrir bardagann

  • Nautsterk
  • 6 sigrar eftir rothögg
  • Mun pressa Tate stíft
Eitt af rothöggum ársins 2012 var þegar Barboza rotaði Terry EtimVísir/Getty
Donald Cerrone (22-6) gegn Edson Barboza (13-1) – léttvigt (70 kg)

Edson Barboza og Donald Cerrone eru sennilega tveir af bestu sparkboxurunum í léttvigtinni og gæti bardaginn orðið hrein unun að sjá fyrir sparkbox unnendur.

Donald Cerrone er vinsæll bardagamaður í UFC og ekki að ástæðulausu. Hömlulaus karakterinn hans vekur athygli auk þess sem bardagar hans eru aldrei leiðinlegir. Hann barðist síðast gegn Adriano Martins þar sem hann sigraði eftir rothögg með haussparki (sjá hér).

3 atriði til að hafa í huga fyrir bardagann

  • Frábær sparkboxari
  • Hættulegur í gólfinu líka (14 sigrar eftir uppgjafartök)
  • Mikill skemmtikraftur
Edson Barboza er eins og áður hefur komið fram frábær sparkboxari. Þrisvar hefur hann sigrað bardaga eftir að andstæðingurinn gat ekki staðið í lappirnar eftir ógrynni sparka í lærin. Hann er með ótrúlegt vopnabúr og sigraði Terry Etim eftirminnilega með snúnings hælsparki í höfuð (sjá hér).

3 atriði til að hafa í huga fyrir bardagann

  • 22 sigrar í sparkboxi eftir rothögg
  • 8 sigrar í MMA eftir rothögg
  • Nær að verjast 83% fellutilrauna
Yoel Romero (7-1) gegn Brad Tavares (12-1) – millivigt (84 kg)

Fyrsti bardagi kvöldsins á aðal hluta bardagakvöldsins verður eflaust skemmtilegur millivigtarbardagi.

Yoel Romero hlaut silfur á Ólympíuleikunum í Sydney í frjálsri glímu og er einn verðlaunaðasti glímumaðurinn í UFC. Bardagar hans eru þó langt í frá að vera “lay’n’pray” leiðinlegheit þar sem allir 8 bardagar hans hafa endað með rothöggi.

3 hlutir til að hafa í huga fyrir bardagann

  • Kraftmikill
  • Ekki enn náð fellu í UFC
  • Sigrað alla bardaga sína með rothöggi
Brad Tavares er einn vanmetnasti bardagamaðurinn í millivigt. Hann var keppandi í The Ultimate Fighter raunveruleikaþáttunum þar sem fór lítið fyrir honum. Þar var fátt sem benti til þess að hann ætti eftir að vera 7-1 í UFC eftir að raunveruleikaseríunni lauk.

3 hlutir til að hafa í huga fyrir bardagann

  • Góður alls staðar
  • Með góða höku
  • 10 árum yngri en Romero
Vísir og MMA fréttir hafa tekið höndum saman í umfjöllun um MMA. Pétur Marinó er ritstjóri MMA frétta og birtir fréttir úr MMA heiminum á Vísi. Ekki gleyma að setja "like" við Facebook síðu þeirra hér. 

MMA

Tengdar fréttir

Bardaginn um titilbardagann: Travis Browne gegn Fabricio Werdum

Næstkomandi laugardagskvöld á Stöð 2 Sport fer fram sannkallaður þungavigtarslagur þegar Travis Browne mætir Fabricio Werdum. Bardaginn mun ákvarða hvor þeirra fær tækifæri til að mæta núverandi meistara, Cain Velasquez, í titilbardaga. Bardaginn fer fram í Orlando í Flórída og verður aðalbardagi kvöldsins.

Frábær kvennabardagi á laugardaginn

Laugardagskvöldið 19. apríl er stórskemmtilegur UFC viðburður þegar Fabricio Werdum mætir Travis Browne í mikilvægum bardaga í þungavigtinni. Sama kvöld mætast þær Miesha Tate og Liz Carmouche í skemmtilegum bardaga í bantamvigt kvenna. Bardagaveislan hefst á miðnætti og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×