Enski boltinn

Upphitun: Moyes mætir aftur á Goodison Park | Myndband

Liverpool þarf þrjú stig þegar liðið mætir Norwich á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Liverpool hefur unnið tíu leiki í röð og mætir til leiks sem mun sigurstranglegri aðilinn. Norwich er hins vegar að berjast fyrir lífi sínu í deildinni og má ekki við að tapa sínum fjórða leik í röð.

Arsenal leikur gegn Hull á útivelli og David Moyes, stjóri Manchester United, mætir aftur á sinn gamla heimavöll í fyrsta sinn er liðið mætir Everton á Goodison Park.

Báðir leikir skipta gríðarlega miklu máli í baráttunni um fjórða sætið. Arsenal er sem stendur í fjórða sætinu með 67 stig en Everton kemur næst með 66. United er svo í sjöunda sætinu með 57 stig.

Farið er yfir leiki dagsins í myndbandinu hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×