Innlent

Uppeldisaðferðin RIE hefur slegið í gegn

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Uppeldisaðferðin RIE eða virðingarríkt tengslauppeldi hefur slegið í gegn meðal foreldra á Íslandi undanfarna mánuði en hún gengur meðal annars út á frjálsan leik barna. Í dag var opnaður ævintýraleikvöllur undir áhrifum hennar en þangað mætti fjöldi barna sem léku sér við efnivið á borð við spítur, pappakassa og klósettrúllur.

RIE, Respectful Parenting, eða virðingarríkt tengslauppeldi er uppeldisaðferð sem hefur hlotið mikla athygli síðustu ár. Hugmyndafræðin byggir á virðingu og trausti í uppeldi en samkvæmt henni eiga foreldrar til að mynda frá fyrsta degi að tala eðlilega við börnin og sleppa öllu leikriti. Þá er einn þáttur hennar er frjáls leikur barna en RIE foreldrafélagið var með svokallaðan ævintýraleikvöll í dag sem var innblásin af hugmyndafræðinni.

Þannig er börnum boðið upp á alls kyns efnivið sem þau leika sér með á eigin forsendum, svo sem pappakassa,efnisbúta, plastbox, spítur, potta og teip.

„Þetta er opin efniviður sem hefur enga fyrirfram ákveðið hlutverk og þá þurfa krakkarnir að ákveða hvernig þau ætla að láta þennan efniverð einhvernvegin verða að einhverju,“ segir Kristín Maríella, sem hefur orðið einskonar talskona RIE á Íslandi, en hún heldur úti bloggsíðu um hugmyndafræðina. 

Kristín segir að að þeir sem tileinki sér RIE reyni að forðast of flókin leikföng. „Af því þá erum við að ala upp krakka sem eru vanir því að það sé endalaust verið að skemmta þeim í staðinn fyrir að þau séu að skemmta sjálfum sér,“ segir Kristín.

Erfitt er að segja hversu margir foreldrar á Íslandi nota þessa uppeldisaðferð en mörg þúsund foreldrar eru virkir meðlimir í Facebook-hópnum Rie á Íslandi. Kristín segist hafa fundið fyrir gríðarlega aukum áhuga síðasta árið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×