Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Sjóðheitur Garðar sökkti Stjörnunni | Myndbönd

Erlendur Eiríksson er mættur aftur á völlinn og byrjaður að dæma á fullu.
Erlendur Eiríksson er mættur aftur á völlinn og byrjaður að dæma á fullu. vísir/hanna
Níunda umferð Pepsi-deildar karla 2016 í knattspyrnu kláraðist í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

Þessi sundurslitna umferð bauð upp á 19 mörk. Garðar Gunnlaugsson skoraði þrennu þegar ÍA lagði Stjörnuna að velli á Skaganum. Fjölnismenn skelltu KR-ingum á Extra-vellinum og Blikar kláruðu Eyjamenn á fyrstu sex mínútunum. Fylkir vann sinn fyrsta sigur en Þrótturum tókst ekki að vinna Ólsara þrátt fyrir að hafa fengið tvö mörk í forgjöf. Þá tryggði Emil Pálsson FH annan 0-1 sigur á erfiðum útivelli í röð.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum leikjum umferðarinnar:

ÍA 4-2 Stjarnan

Fylkir 1-0 Víkingur

Víkingur Ó. 3-2 Þróttur

ÍBV 0-2 Breiðablik

Fjölnir 3-1 KR

Valur 0-1 FH

Garðar vantar aðeins eitt mark til að jafna markaskor sitt frá því í fyrra.vísir/anton
Góð umferð fyrir ...

... Garðar Gunnlaugsson

Fylgdi mörkunum tveimur gegn KR eftir með þrennu í leiknum við Stjörnuna. Garðar er nú kominn með átta mörk í Pepsi-deildinni og er orðinn markahæstur. Það er allt auðveldara með sjóðheitan framherja eins og Skagamenn eru að kynnast. Garðar er búinn að skora jafn mörg mörk og KR og Þróttur og þremur fleiri en allt Fylkisliðið og er helsta ástæðan fyrir því að ÍA er fyrir ofan þessi lið í töflunni.

... Hermann Hreiðarsson

Loksins, loksins kom fyrsti sigurinn hjá Fylki eftir langa eyðimerkurgöngu. Hermanni Hreiðarssyni, þjálfara liðsins, er eflaust létt en hann hefur fengið talsvert mikla gagnrýni í sumar, bæði fyrir gengi liðsins og hegðun sína á hliðarlínunni. Eyjamaðurinn vann hins vegar vel fyrir kaupinu sínu gegn Víkingum en skiptingarnar hans breyttu leiknum. Varamennirnir komu inn af krafti og bjuggu til markið sem skildi liðin að.

... Emil Pálsson

Emil tryggði FH annan 1-0 sigurinn á erfiðum útivelli þegar hann skoraði eina mark leiksins gegn Val. Emil skoraði einnig sigurmarkið gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli og er kominn með þrjú mörk í Pepsi-deildinni í ár. Það hefur verið mikill stígandi í spilamennsku Emils í sumar og hann er farinn að minna á manninn sem var valinn leikmaður ársins í fyrra.

Víkingar náðu ekki að brjóta Fylkisvörnina á bak aftur.vísir/eyþór
Erfið umferð fyrir ...

... Þrótt

Lærisveinar Greggs Ryder þurftu að svara fyrir 0-5 tap fyrir Fjölni í síðustu umferð og byrjuðu fullkomlega í Ólafsvík. Staðan var orðin 2-0 eftir tvær mínútur og allt leit svo vel út. En Þróttarar voru sjálfum sér verstir og köstuðu frá sér sigrinum með ömurlegum varnarleik. Liðið hefur fengið á sig langflest mörk allra í Pepsi-deildinni í sumar, eða 24 mörk. Þeir hafa verið sérstaklega veikir fyrir á lokakafla leikjanna og það verður að setja spurningarmerki við formið á liðinu.

... Jonathan Glenn

Trínídadinn virkaði yfirspenntur á sínum gamla heimavelli og var rekinn af velli á 82. mínútu eftir að hafa fengið að líta tvö gul spjöld. Sem betur fer fyrir hann voru Blikar með 2-0 forystu og góð tök á leiknum. Glenn fékk fyrra gula spjaldið fyrir leikaraskap og það seinna fyrir ljótt olnbogaskot. Olnbogarnir hjá Glenn voru hvassir í Eyjum en honum tókst líka að nefbrjóta Avni Pepa, fyrirliða ÍBV. Glenn á enn eftir að skora í sumar og gerir það allavega ekki meðan hann er í banni.

... Stjörnumenn

Garðbæingar voru með leikinn gegn ÍA í hendi sér, komust yfir með glæsimarki Brynjars Gauta Guðjónssonar snemma í seinni hálfleik og allt lék í lyndi. En síðan jöfnuðu Skagamenn og þá koðnuðu Stjörnumenn niður og fengu á sig tvö mörk til viðbótar. Þeir eru því aftur komnir á byrjunarreit eftir sigurinn á ÍBV. Stjörnumenn hafa aðeins unnið einn leik af síðustu átta í deild og bikar og hafa valdið miklum vonbrigðum. Hópurinn er ógnarsterkur en það vantar samt eitthvað í liðið.

Hólmbert skoraði ekki gegn Fjölni, ekki frekar en gegn öðrum í deildinni.vísir/hanna
Tölfræðin og sagan:

*Garðar Gunnlaugsson hefur skorað 5 mörk á síðustu 97 mínútum sínum í Pepsi-deildinni eða mark á 19 mínútna fresti.

*Fyrir þrennu Garðars Gunnlaugsonar á móti Stjörnunni höfðu 4 síðustu þrennur á Akranesvelli verið skoraðar af leikmenn gestaliðsins.

*Stjarnan náði í 9 stig í fyrstu 3 leikjum sínum í Pepsi-deildinni en hefur síðan aðeins náð í 5 stig í 6 leikjum.

*Ólafsvíkingar hafa undanfarin tvö tímabil náð í 96 prósent stiga í boði í leikjum sínum í Ólafsvík (43 stig af 45).

*Ólafsvíkingar hafa skorað fjögur sigurmörk á 75. mínútu eða síðar í Pepsi-deildinni í sumar.

*Þróttarar hafa fengið á sig 3 mörk eða fleiri í 5 af 9 leikjum sínum í Pepsi-deildinni í sumar.

*Markatala Þróttara í síðustu tveimur leikjum liðsins í Pepsi-deildinni er +2 á fyrsta hálftímnum (2-0) en svo -8 á síðustu 60 mínútunum (0-8).

*Víkingar hafa ekki unnið Fylki í efstu deild síðan 1993 eða í 13 leikjum í röð (2 jafntefli, 11 Fylkissigrar).

*Fylkisliðið hafði ekki haldið hreinu í 9 leikjum í röð í Pepsi-deildinni eða síðan að liðið mætti Víkingi R. síðast.

*Fylkismenn hafa aðeins verið yfir í 6 prósent leiktímans í Pepsi-deildinni í sumar (46 mínútur af 810). 

Gunnar Nielsen hélt hreinu gegn Val.vísir/hanna
Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:

Guðmundur Tómas Sigfússon á Hásteinsvelli:

„Avni virðist vera nefbrotinn, líklega í fyrsta skiptið sem að maður á gula spjaldi nefbrýtur mótherja og heldur áfram inni á vellinum, alltaf sér maður eitthvað nýtt.“

Stefán Árni Pálsson á Valsvellinum:

„Það er akkúrat ekkert að gerast núna. Svolítið eins og að horfa á málningu þorna. Það verður bara að segjast alveg eins og er.“

Jóhann Óli Eiðsson á Ólafsvíkurvelli:

„Um tuttugu manns eru mættir í stúkuna til að styðja sína menn. Ég skil fólk sem ætlar að taka bílastúkuna enda veðrið ekki upp á marga fiska.“

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Garðar Gunnlaugsson, ÍA - 9

Pape Mamadou Faye, Víkingur Ó. - 3

Thiago Borges, Þróttur - 3

Kristian Larsen, Þróttur - 3

Viktor Jónsson, Víkingur - 3

Vladimir Tufegdzic, Víkingur - 3

Morten Beck Andersen, KR - 3

Umræðan á #pepsi365

Markasyrpan úr 9. umferð Pepsi-deildar karla Flottasta mark 9. umferðarinnar Atvik 9. umferðarinnar Leikmaður 9. umferðarinnar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×