Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Rauði Baróninn klikkaði | Myndbönd

Chuck og félagar voru rassskelltir í fallslagnum í Grafarvogi.
Chuck og félagar voru rassskelltir í fallslagnum í Grafarvogi. vísir/arnþór
Þrettánda umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu kláraðist í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum nótum.

FH og Stjarnan eru enn taplaus á toppi deildarinnar, en þau láta Evrópukeppni ekkert á sig fá og halda áfram að vinna. Víkingar eru nú einir í þriðja sætinu eftir öruggan sigur á Fram sem er á botninum með Þórsurum. Fjölnir vann sinn fyrsta leik frá því í annarri umfeðr.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum sex leikjum umferðarinnar:

KR - Breiðablik

Keflavík - Valur

Fram - Víkingur

Fylkir - FH

Stjarnan - ÍBV

Fjölnir - Þór

Emil Pálsson skoraði sitt fyrsta mark í sumar.vísir/arnþór
Góð umferð fyrir ...

... Víkinga

Nýliðarnir halda áfram vegferð sinni að Evrópukeppni, en ekkert lið hefur komið meira á óvart í sumar. Ekki nóg með að þeir tóku Framara létt í Dalnum, 3-0, þá féllu úrslitin með þeim í öðrum leikjum. KR og Keflavík töpuðu stigum og sitja Víkingar því einir í þriðja sæti með 25 stig eftir þrettán umferðir. Þessu bjóst ekki nokkur maður við.

... Emil Pálsson

Miðjumaðurinn öflugi var hreint frábær á undirbúningstímabilinu þar sem hann spilaði gjarnan sem fremsti maður. Hann raðaði inn mörkum og töldu ýmsir sparkspekingar að hann myndi verða ein af stjörnum sumarsins. Í staðinn hefur hann verið inn og út úr liðinu og ekki skorað mark. Það er að segja fyrr en í gærkvöldi þegar hann skoraði glæsilegt mark í 2-0 sigri á Fylki. Ljúft fyrir Emil að komast loks á blað.

... Magga Gylfa

Fögnuður hans eftir leik sagði allt sem segja þarf. Hann bangsaknúsaði aðstoðarþjálfarann Halldór Jón Sigurðsson rækilega þegar flautað var til leiksloka eftir sigurinn á Keflavík í Bítlabænum í gær. Eftir þrjá tapleiki í röð var afskaplega kærkomið að vinna sigur, og ekki verra að fá mörk frá Patrick Pedersen og Daða Bergssyni. Það væri ekki slæmt ef þeir tveir kæmust í gang á seinni hluta mótsins.

Ármann Pétur Ævarsson í tapleiknum gegn Fjölni.vísir/arnþór
Erfið umferð fyrir ...

... Pál Viðar Gíslason

Sumarið hefur vissulega verið hreinlega erfitt fyrir þjálfara Þórsara, enda liðið í harðri fallbaráttu. Sjálfur hefur hann þó haldið haus í viðtölum og sagst hafa trú á verkefninu, eða þar til í gær. Eftir tapið gegn Fjölni í gærkvöldi viðurkenndi Páll Viðar í fyrsta skipti, að ef Þórsarar fara ekki að girða sig í brók fara þeir „lóðrétt niður“ eins og hann orðaði það sjálfur.

... Keflvíkinga

Keflvíkingar hafa staðið sig mun betur en margir héldu í sumar, en þeir hafa nú rekist á ansi þykkan vegg virðist vera í Pepsi-deildinni. Lærisveinar Kristjáns Guðmundssonar töpuðu fyrir Val í gærkvöldi með sigurmarki frá gestunum á 86. mínútu og hafa aðeins unnið einn af síðustu níu leikjum sínum í deildinni.

... Rauða Baróninn

Dómarinn Garðar Örn Hinriksson rak Stefán Loga Magnússon ranglega af velli í Frostaskjólinu í gærkvöldi. Áfall fyrir Rauða Baróninn sem vanalega neglir allar ákvarðanir þegar kemur að rauðum spjöldum. Ekki nóg með það heldur kom upp ansi vandræðalegt atvik í leiknum þegar hann var of fljótur að dæma og rændi algjöru dauðafæri af Blikum sem þeir gerðu sig líklega til að skora úr. Ekki besti dagur Garðars Arnar.

Siggi Raggi og Dean Martin hafa ekki náð að snúa gengi Eyjamanna á gervigrasi við.vísir/daníel
Tölfræðin:

*Fjölnisliðið var fyrir sigurinn á Þór búið að leika tíu deildarleiki í röð án sigurs sem er lengsta bið félagsins eftir sigri í efstu deild (metið var áður 9 leikir í röð án sigurs sumarið 2009).

*Þórsarar hafa ekki náð í eitt einasta stig í þremur leikjum sínum við nýliða Fjölnis og Víkings í Pepsi-deildinni í sumar og markatalan er 4-9 þeim í óhag.

*Arnar Már Björgvinsson er búinn að leggja upp mark í þremur leikjum Stjörnunnar í röð í Pepsi-deildinni.

*Eyjamenn hafa ekki náð að fagna sigri á gervigrasi í Pepsi-deildinni undanfarin fjögur tímabil (2 stig í 5 leikjum).

*KR-ingar voru undir í hálfleik í sjötta sinn í Pepsi-deildinni í sumar og markatala KR-liðsins fyrstu 45 mínútur leikjanna er -5 (8-13).

*KR-ingar voru búnir að vinna 14 leiki í röð í deild (9) og bikar (5) á KR-vellinum fyrir jafnteflið við Blika eða allt frá þvi að Blikar fóru í burtu með stig af KR-vellinum á síðasta tímabili.

*Valsmenn hafa náð í 7 stig af 9 mögulegum í leikjunum þremur í Pepsi-deildinni þar sem Patrick Pedersen hefur verið í byrjunarliðinu.

*Víkingar hafa unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum í Pepsi-deildinni.

*Framarar hafa ekki skorað í 357 mínútur í Pepsi-deildinni og fengið á sig 9 mörk á sama tíma.

*Framarar töpuðu sínum fimmta deildarleik í röð og markatalan í þessum fimm leikjum er -12 (1-13).

Steven Lennon var mættur á bekkinn hjá FH.vísir/arnþór
Skemmtilegir punktar úr boltavaktinni:

Kristinn Páll Teitsson á Fjölnisvellinum:


„Gunnar Már Guðmundsson skoraði mark  -  Þetta er vandræðalegur varnarleikur. Gunnar Már kemur ódekkaður á fjærstöng og leggur fyrirgjöf Ragnars snyrtilega í netið. Ég hef gjörsamlega enga hugmynd hvers konar varnarleikur þetta var. “ 

Árni Jóhannsson á Nettó-vellinum:

Ég gæti hafa jinxað þetta með því að segja áðan að skýin hótuðu ekki rigningu því það er byrjað að rigna. Ég biðst afsökunar en um leið sé ég ekki eftir neinu.“   

Guðmundur Marinó Ingvarsson á Fylkisvellinum:

„Steven Lennon spilar í skær appelsínugulum skóm. Gæti trúað því að það sé sekt gegn Fylki.“

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Daníel Laxdal, Stjörnunni - 9

Sveinn Sigurður Jóhanneson, Stjörnunni - 8

Martin Rauschenberg, Stjörnunni - 8

Michael Præst, Stjörnunni - 8

Bergsveinn Ólafsson, Fjölni - 8

Gunnar Már Guðmundsson, Fjölni - 8

Igor Taskovic, Víkingi - 8

Guðjón Pétur Lýðsson, Breiðabliki - 8

Emil Pálsson, FH - 8

Orri Freyr Hjaltalín, Þór - 3

Aron Grétar Jafetsson, Keflavík - 3

Andrew Sousa, Fylki - 3

Umræðan #pepsi365

Flottasta mark umferðarinnar: Bergsveinn Ólafsson, Fjölni Öll mörkin úr 13. umferðinni: Atvik 13. umferðar: Stefán Logi fær rautt spjald

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×