Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Dómari fluttur á brott í sjúkrabíl

Þorvaldi Árnasyni var óglatt er hann gekk af velli í hálfleik með heilahristing.
Þorvaldi Árnasyni var óglatt er hann gekk af velli í hálfleik með heilahristing. vísir/stefán
Þrettánda umferð Pepsi-deildar karla lauk í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttu nótunum.

FH nýtti sér jafntefli KR og Breiðabliks og skaust aftur á toppinn með sigri á Keflavík. Liðið er með sama stigafjölda og KR en einu marki meira í plús. Jafnara getur það ekki orðið. Keflavík situr sem fastast á botninum með fimm stig en Leiknir er þar fyrir ofan með tíu stig.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum leikjum umferðarinnar:

Valur - Víkingur  0-1

Stjarnan - ÍBV  3-0

ÍA - Leiknir  2-1

Fylkir - Fjölnir  0-4

KR - Breiðablik  0-0

Keflavík - FH  1-2



Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA.vísir/vilhelm
Góð umferð fyrir...

...Stjörnumenn

Eftir mikla eyðimerkurgöngu Íslandsmeistaranna þá kom fyrsti heimasigurinn loksins í hús. Ótrúlegt að meistararnir vinni ekki leik á heimavelli í titilvörn fyrr en 26. júlí en betra seint en aldrei. Stjörnumenn þurfa að halda uppteknum hætti ef þeir ætla sér að komast í Evrópukeppnina næsta sumar.

...Atla Viðar Björnsson, FH-ing

Eina ferðina enn kemur Atli Viðar af bekknum og bjargar þrem stigum fyrir sitt lið. Að þessu sinni dugði það fyrir toppsætinu. Það kalla allir eftir því að hann spili meira en Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, hlustar ekki alltaf á þær raddir. Viðhorf Atla Viðars er sem fyrr til mikillar fyrirmyndar. Er ekki að rífa kjaft í fjölmiðlum heldur kemur tilbúinn á völlinn og lætur verkin tala. Hann er núna búinn að skora 101 mark í efstu deild.

...Gunnlaug Jónsson, þjálfara ÍA

Aftur tekst ÍA að vinna sína sex stiga leiki og liðið er einmitt sex stigum frá fallsæti eftir afar mikilvægan sigur á Leikni. ÍA er með sjö stig úr síðustu þrem leikjum og með sama áframhaldi heldur falldraugurinn áfram að feykjast yfir Faxaflóann og hann hefur nú tekið sér bólfestu í Breiðholtinu þar sem Leiknismönnum gengur afar illa að skora.



Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis.vísir/stefán
Erfið umferð fyrir...

...Ásmund Arnarsson, þjálfara ÍBV

Fyrsti leikur ÍBV undir hans stjórn var í Garðabænum og Ása virtist ekki takast að kveikja neinn neista í ÍBV-liðinu. Eyjamenn voru linir og ekki líklegir til neins í tapinu gegn Stjörnunni. Vonbrigði fyrir Ásmund og ÍBv að liðið skildi ekki mæta betur stemmt en þetta er menn voru að sanna sig fyrir nýjum þjálfara.

...Leiknismenn

Það er óhætt að segja að hlutirnir séu ekki að falla með Leiknismenn. Enn og aftur var mark dæmt af liðinu og það virðist vera kominn pirringur í þeirra herbúðir. Mörkin eru ekki að koma og stigin þar af leiðandi ekki heldur. Það þýðir lítið að væla yfir því að liðið þeirra hafi verið betri aðilinn þegar stigainnkoman er engin. Það er það eina sem telur.

...Þorvald Árnason dómara

Þorvaldur fékk boltann af afli í höfuðið í leik KR og Breiðabliks og steinlá. Hann var aftur á móti fljótur á fætur og kláraði að dæma fyrri hálfleikinn með sóma. Í hálfleik kom síðan í ljós að hann hafði fengið heilahristing. Hann var farinn að kasta upp og var loks fluttur á brott í sjúkrabíl. Vísir sendir honum bestu batakveðjur.

Jonathan Glenn í Blikagallanum.vísir/stefán
Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Alvogen-vellinum:

„Björgólfur Guðmundsson er á sínum stað í stúkunni. Gegnheill KR-ingur og styður sína menn í gegnum súrt og sætt. Hann spilaði stórt hlutverk hjá KR á sínum tíma og svo sem bankastjóri Landsbankans þegar hann var aðalstyrktaraðili deildarinnar. Þá fengu blaðamenn flíspeysur og úlpur. Góðærið, maður."

Ingvi Þór Sæmundsson á Vodafone-vellinum:

„Það eru ekkert rosalega margir mættir til að kveðja grasið hér á Vodafone-vellinum. Það er nú ýmislegt að gerast í dag; Drusluganga, strandboltamót og fleira."

Stefán Árni Pálsson á Samsung-vellinum:

„Fyndið atvik. Gunnar Heiðar lá sárþjáður á vellinum í nokkuð langan tíma. Þegar hann stóð upp spjaldaði Garðar Örn hann fyrir leikaraskap. Hann haltrar enn um völlinn."

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Oliver Sigurjónsson, Breiðablik - 8

Kennie Knak Chopart, Fjölnir - 8

Þórir Guðjónsson, Fjölnir - 8

Jeppe Hansen, Stjarnan - 8

Milos Zivkovic, Víkingur - 8

Ásgeir Eyþórsson, Fylkir - 3

Ásgeir Örn Arnþórsson, Fylkir - 3

vísir/vilhelm
Umræðan á #Pepsi365

Mark 13. umferðar: Atvik 13. umferðar: Markasyrpa 13. umferðar:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×