Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Dómaraumferðin mikla

Guðmundur Ársæll stóð í ströngu í gær.
Guðmundur Ársæll stóð í ströngu í gær. Vísir/Hanna
Sautjándu umferð Pepsi-deildar karla lauk í gærkvöldi með fjórum leikjum? Hverjir áttu góðan dag og hverjir erfðan dag? Hvernig var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

FH hélt sjö stiga forystu sinni á toppi Pepsi-deildar karla með 2-0 sigri á Víkingi í Ólafsvík en það dreifðist aðeins meira úr liðunum sem koma í næstu sætum á eftir.

Breiðablik er í raun eina liðið sem á raunhæfan möguleika á að ná FH-ingum úr þessu en Blikar eru í öðru sætinu með 30 stig eftir sigur á Stjörnunni, 2-1, um helgina. FH og Blikar eigast einmitt við í næstu umferð sem er þó ekki fyrr en eftir landsleikjafríið sem er nú fram undan.

Valur er komið upp í þriðja sætið eftir 2-0 sigur á KR, ÍA upp að Fjölni eftir 2-0 sigur á Víkingi en Grafarvogspiltar björguðu stigi með síðbúnu jöfnunarmarki gegn Fylki.

Það kom Fylki til bjargar að ÍBV gerði aðeins jafntefli gegn botnliði Þróttar á heimavelli og Eyjamenn því enn aðeins fjórum stigum frá fallæsti.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum leikjum helgarinnar:

Breiðablik - Stjarnan 2-1

ÍBV - Þróttur 1-1

ÍA - Víkingur 2-0

Víkingur Ó - FH 0-2

Fjölnir - Fylkir 1-1

Valur - KR 2-0

Kristinn Freyr í baráttunni við Skúla JónVísir/Hanna
Góð umferð fyrir ...

... FH

Hafnfirðingar eru skrefi nær Íslandsmeistaratitlinum eftir að sótt þrjú stig til Ólafsvíkur. FH-vélin mjallar áfram, liðið hélt hreinu og Atli Viðar skoraði. Staða liðsins er virkilega góð en síðasta alvöru prófraun FH-inga verður í næsta leik, þegar Blikar koma í heimsókn. Ef Íslandsmeistararnir klára þann leik verður titilbaráttan formsatriði eitt.

... Gulla Jóns og Garðar Gunnlaugs

Það er á engan hallað þegar sagt er að Skagamenn eru að fara fram úr björtustu vonum með frábæru gengi í sumar. Liðið er komið í bullandi baráttu um Evrópusæti, aðeins tveimur stigum á eftir Blikum í öðru sæti og eiga botnlið Þróttar í næstu umferð. Síðustu fjórir leikir ÍA eru reyndar gríðarlega erfiðir (KR, Stjarnan, Breiðablik og Valur) og fá Gulli Jóns og hans menn að hafa fyrir hlutunum ætli Skagamenn sér að safna stigum í lokaumferðunum. En þeir eru með Garðar Gunnlaugsson sem er kominn með fjórtán mörk í sumar. Hann virðist alltaf líklegur til að skora.

... Kristin Frey Sigurðsson (enn og aftur)

Kristinn Freyr er eins og svindlkall í Pepsi-deildinni. Hann er það góður. Valsmenn hafa verið á svakalegri siglingu að undanförnu og hefur Kristinn Freyr farið þar fremstur í flokki. Hann hefur skorað tvö mörk í leik í síðustu þremur leikjum sínum og alls þrettán af sextán mörkum sínum í deild og bikar í júlí og ágúst. Hann ætlar sér út í atvinnumennsku í haust og skyldi engan undra.

Erlendur Eiríksson á Extravellinum í gær.Vísir/Hanna
Erfið umferð fyrir ...

... hjartveika Árbæinga

Það er ekkert grín að vera stuðningsmaður Fylkis. Svo mikið er ljóst. Enn og aftur tapaði Fylkir stigum á lokamínútum leiks og í annað skipti í sumar gegn Fjölni eftir að hafa fengið á sig svokallað flautumark. Jöfnunarmark Fjölnis var sérstaklega grimmt um helgina. Uppgefinn uppbótartími var liðinn og það var fyrrum leikmaður Fylkis, Ingimundur Níels Óskarsson, sem skoraði markið. Hann skipti um lið á miðju tímabili. Fylkir þurfti sárlega á þremur stigum að halda í gær enda í harðri fallbaráttu. En allt kom fyrir ekki.

... dómara

Það er ekkert grín að vera knattspyrnudómari enda vill það oft verða þannig að sviðsljósið berst ekki að þeim nema að eitthvað sé að. Það var sannarlega tilfellið á Híðarenda, Grafarvogi og jafnvel Ólafsvík í gær. Erlendur Eiríksson fékk það óþvegið frá Hermanni Hreiðarssyni, þjálfara Fylkis, í gær og Guðmundur Ársæll Guðmundsson tók umdeildar ákvarðanir á Valsvellinum þegar hann rak Skúla Jón Friðgeirsson af velli og dæmdi víti á KR skömmu síðar. Þá skoraði FH mark í Ólafsvík í gær þar sem erfitt var að sjá hvort að boltinn hafi farið yfir línuna.

... útivallarvíkinga

Aðeins tvö lið, FH og Valur, hafa unnið fleiri leiki á heimavelli en Reykjavíkurvíkingar. Víkingur hefur þó aðeins unnið einn leik á útivelli í allt sumar og tapaði í gær sínum sjötta leik á útivelli í sumar er liðið tapaði fyrir ÍA, 2-0, á Skaganum. Víkingur er fast í miðjumoði í deildinni en það er stutt í baráttuna um Evrópusæti og grátlegt fyrir Víkinga að hugsa til þeirra fjöldamargra stiga sem liðið hefur tapað á útivelli í sumar.

Vísir/Hanna
Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Kópavogsvelli:

Maggi Bö vökvar völlinn eins og enginn sé morgundagurinn. Alveg sama þótt að einhverjir varamenn séu að hitta upp, þeir geta bara forðað sér þegar gusan kemur. Og þvílík gusa. Hér er ekki verið að leika sér.

Kristinn Páll Teitsson á Norðurálsvellinum:

Hér er mávur að gera sig líklegan. Var að teygja sig í veitingar ungra áhorfenda þegar honum stökkbrá og fór aftur á flug.

Smári Jökull Jónsson á Valsvelli:

KR-ingar eru komnir út á völl í upphitun og Valsmenn eru að tínast inn einn á fætur öðrum. Ólafur Jóhannesson er hins vegar mættur og átti fótum sínum fjör að launa þegar vökvunarkerfið fór í gang við hlið hans.

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Guðmundur Böðvar Guðjónsson, ÍA 8

Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 8

Garðar Gunnlagusson, ÍA 8

Kristinn Freyr Sigurðsson, Val 8

Stefán Logi Magnússon, KR 8

Derby Carillo, ÍBV 2

Viktor Bjarki Arnarsson, Víkingi 3

Igor Taskovic, Víkingi 3

Óttar Magnús Karlsson, Víkingi 3

Umræðan á #pepsi365


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×