Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Bless Bjarni | Myndbönd

Gary Martin skaut Ólsara í kaf.
Gary Martin skaut Ólsara í kaf. vísir/eyþór
Áttunda umferð Pepsi-deildar karla 2016 í knattspyrnu kláraðist í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

KR tapaði þriðja leiknum í röð og Bjarni Guðjónsson fékk sparkið. Skagamenn fóru hins vegar upp úr fallsæti þökk sé tveimur mörkum Garðars Gunnlaugssonar. Toppliðin FH og Fjölnir unnu bæði, þótt sigrarnir væru ólíkir. Stjörnumenn komust aftur á sigurbraut og Gary Martin fór í gang gegn Ólsurum. Blikar og Valsmenn gleymdu að reima á sig markaskóna.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum leikjum umferðarinnar:

Stjarnan 1-0 ÍBV

KR 1-2 ÍA

Víkingur R. 2-0 Víkingur Ó.

FH 1-0 Fylkir

Þróttur 0-5 Fjölnir

Breiðablik 0-0 Valur

Skagamenn eru komnir upp úr fallsæti.vísir/eyþór
Góð umferð fyrir ...

... Skagamenn

ÍA hafði ekki unnið í Vesturbænum í 10 ár þegar að leiknum á fimmtudaginn kom. Og lengi vel benti ekkert til þess að breyting yrði þar á. En Skagamenn gáfust ekki upp, jöfnuðu metin og Garðar skoraði svo stórglæsilegt og eftirminnilegt sigurmark. Með sigrinum komust Akurnesingar upp úr fallsæti og eru aðeins tveimur stigum frá KR.

... Birni Snæ Ingason

Er hinn nýi Aron Sigurðarson fundinn? Miðað við síðustu tvo leiki er svarið já. Hinn tvítugi Birnir Snær átti góðan leik gegn KR í síðustu umferð og fór svo á kostum þegar Fjölnismenn rassskelltu Þróttara í Laugardalnum í gær. Birnir kom Fjölni yfir með frábæru marki á 39. mínútu og skoraði svo annað um mínútu síðar. Hann lagði svo þriðja mark Grafarvogsliðsins upp fyrir Martin Lund Pedersen og var síógnandi á hægri kantinum.

... Gary Martin

Englendingurinn stimplaði sig almennilega til leiks í Pepsi-deildina í ár með tveimur mörkum gegn Ólsurum í Víkinni í gærkvöldi. Martin fékk að spila sína stöðu, sem framherji, og þakkaði fyrir sig með flottum leik. Fyrra mark Martins kom úr vítaspyrnu og hið síðara með góðu skoti á lofti. Ef honum tekst að fylgja þessari frammistöðu eftir í næstu leikjum munu Víkingar klífa upp töfluna.

Guðjón Baldvinsson var rekinn af velli þegar Stjarnan vann sinn fyrsta sigur í rúman mánuð.vísir/eyþór
Erfið umferð fyrir ...

... gjaldkera félaganna

Mætingin á leikina í 8. umferð var ekki upp á marga fiska enda týnist Pepsi-deildin kannski í öllu EM-fárinu. Það var t.a.m. hálf sorglegt að sjá nánast tóma stúku í leik KR og ÍA vestur í bæ.

... Bjarni Guðjónsson

KR tapaði þriðja leiknum í röð og þá fengu stjórnarmenn KR nóg og ráku Bjarna og Guðmund Benediktsson, aðstoðarmann hans, úr starfi. Bjarni skilur við KR í 9. sæti deildarinnar með einungis níu stig. Aðeins tvö stig eru niður í fallsæti. Þjálfaraferill Bjarna hefur ekki byrjað glæsilega, hann féll á sínu fyrsta tímabili með Fram og mistókst að koma með stóran titil í Vesturbæinn.

... Fylkismenn

Átta umferðir eru búnir og enn bólar ekkert á fyrsta sigrinum. Fylkismenn biðu lægri hlut fyrir FH í gærkvöldi og eru aðeins með tvö stig, fimm stigum frá öruggu sæti. Lærisveinar Hermanns Hreiðarssonar sýndu batamerki í leikjunum á undan en þeir sköpuðu sér varla færi gegn FH og voru heppnir að fá ekki meira en eitt mark á sig. Fylkismenn hafa verið samfleytt í efstu deild frá aldamótum en eins og staðan er í dag verður breyting þar á.

Anton Ari Einarsson, markvörður Vals, hélt hreinu á Kópavogsvellinum.vísir/eyþór
Tölfræðin og sagan:

*Þetta er fyrsti stigalausi mánuðurinn hjá KR síðan í tæp 29 ár eða síðan í september 1987.

*Síðast þegar KR vann aðeins 2 af fyrstu 9 leikjum sínum (2010) þá var þjálfari liðsins rekinn eftir leik liðsins í 11. umferð.

*Framherjar KR, þeir Morten Beck Andersen og Hólmbert Aron Friðjónsson, hafa spilað í samtals 916 mínútur í Pepsi-deildinni í sumar án þess að ná að skora.

*Garðar Gunnlaugsson er búinn að skora 5 af síðustu 6 mörkum ÍA í Pepsi-deildinni.

*Þegar ÍA vann KR síðast á KR-velli í deildinni skoraði Arnar Gunnlaugsson tvö mörk fyrrir Skagamenn en nú skoraði Garðar Gunnlaugsson bróðir hans tvö mörk.

Hólmbert er ískaldur líkt og fleiri KR-ingar.vísir/eyþór
Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:

Kristinn Páll Teitsson á Alvogen-vellinum:

„Internet sensationið Guðmundur Benediktsson er á skýrslu í kvöld, rúmum 24 tímum eftir að hafa lýst ótrúlegum 2-1 sigri Íslands á Austurríki í París. Engin hvíld á þeim bænum.“

Jóhann Óli Eiðsson á Kópavogsvelli:

„Ég veit ekki hvað skal segja. Þetta hefur verið óttalega dapurt. Það hefur verið eitt dauðafæri en annars ekki neitt. Kannski hafa leikmenn gleymt sér yfir Brexit kosningunni, of langt á milli leikja eða EM að ræna fókus. Ég tek á móti öllum kenningum.“

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Birnir Snær Ingason, Fjölnir - 9

Aron Þórður Albertsson, Þróttur - 2

Davíð Þór Ásbjörnsson, Þróttur - 2

Umræðan á #pepsi365

Mark 8. umferðar Atvik 8. umferðar Markasyrpa 8. umferðar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×