Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Allt opið á toppnum | Myndbönd

Ellefta umferð Pepsi-deildar karla 2016 í knattspyrnu kláraðist í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

Aðra umferðina í röð mistókst efstu þremur liðum deildarinnar að vinna. Stjörnumenn og Blikar stimpluðu sig aftur inn í toppbaráttuna með góðum sigrum á erfiðum útivöllum. KR vann Fylki í Árbænum eins og venjulega og sigurganga Skagamanna heldur áfram. Tvö mörk í uppbótartíma tryggðu Víkingi R. sigur á Þrótti í fyrsta leik liðanna í efstu deild í 31 ár. Þá sættust ÍBV og FH á skiptan hlut úti í Eyjum.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum leikjum umferðarinnar:

ÍBV 1-1 FH

Víkingur Ó. 2-3 Stjarnan

ÍA 2-1 Valur

Fylkir 1-4 KR

Fjölnir 0-3 Breiðablik

Víkingur R. 2-0 Þróttur

Góð umferð fyrir ...

... Óttar Magnús Karlsson

Hafa Víkingar eignast íslenskan Ole Gunnar Solskjær? Eða nýjan Björn Bjartmarz? Ofurvaramaðurinn Óttar Magnús átti frábæra innkomu gegn Þrótti og skoraði markið sem öllu skipti með föstu skoti í uppbótartíma. Þetta var fjórða deildarmark Óttars í sumar og sjötta í heildina. Strákurinn þarf ekki langan tíma til að láta að sér kveða en það hafa aðeins liðið 67,6 mínútur á milli marka hjá honum í sumar.

... KR-inga

Vesturbæingar sóttu sigur í Árbæinn eins og alltaf og skoruðu fjögur mörk. Morten Beck Andersen vaknaði allur til lífsins þegar hann heyrði af komu Jeppe Hansen í Frostaskjólið og hefur skorað þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum KR. Það er einnig kviknað á Óskari Erni Haukssyni sem er góðs viti fyrir KR-inga. Willum Þór Þórsson hefur komið sterkur inn og þingmaðurinn er greinilega að gera eitthvað rétt því það er allt annað yfirbragð á KR-liðinu eftir að hann tók við.

... Árna Vilhjálmsson

Þrátt fyrir að hafa lítið fengið að spila hjá Lilleström mætti Árni fullur sjálfstrausts í Grafarvoginn og átti stóran þátt í flottum sigri Blika sem eru aðeins þremur stigum á eftir toppliði FH. Árni var sívinnandi og líflegur og lagði öll þrjú mörk þeirra grænu upp. Dúndur endurkoma hjá Árna sem gæti haft svipuð áhrif á lið Breiðabliks og Jonathan Glenn hafði á seinni hluta síðasta tímabils.

Erfið umferð fyrir ...

... Valsmenn

Gengi Vals í sumar hefur verið langt undir væntingum. Valsmenn eru reyndar enn með í Borgunarbikarnum en þeir voru niðurlægðir í Evrópudeildinni og eru aðeins með 14 stig eftir fyrri umferðina í Pepsi-deildinni. Ólafur Jóhannesson gerði nokkrar breytingar frá síðasta leik og þær heppnuðust engan veginn. Valsmenn hafa ekki enn komist almennilega af stað í sumar og geta ekki unnið á útivelli.

... Ágúst Gylfason

Talandi um breytingar, þá gerði Ágúst tvær slíkar í byrjunarliði Fjölnis frá 2-1 tapinu fyrir Stjörnunni í síðustu umferð. Þrátt fyrir tapið spiluðu Fjölnismenn vel í þeim leik svo það var ekki mikil ástæða til breytinga. Ágúst setti Gunnar Má Guðmundsson og Marcus Solberg á bekkinn en hann virtist átta sig á mistökunum því hann setti þá inn á í hálfleik. Þá var staðan hins vegar orðin erfið. Fjölnir hefur núna fengið tvö tækifæri til að komast á toppinn en ekki nýtt þau.

... Derby Rafael Carrilloberduo

Markvörður Eyjamanna hefur haldið fjórum sinnum hreinu í 11 deildarleikjum og aðeins fengið á sig 12 mörk. Þrátt fyrir þessa fínu tölfræði lítur Derby oft illa út og gerir sig sekan um glórulaus mistök. Hann átti sök á sigurmarki Vals í þarsíðustu umferð og á laugardaginn færði hann FH-ingum mark á silfurfati. ÍBV er án sigurs í síðustu fjórum leikjum og má ekki við fleiri mistökum frá Salvadoranum.

Tölfræðin og sagan:

*FH er búið að missa niður fjóra leiki niður jafntefli í Pepsi-deildinni í sumar með því að fá á sig mark á 85. mínútu eða síðar.

*FH tapaði síðast deildarleik í Vestmannaeyjum 10. júlí 2011 en þá þjálfaði Heimir Hallgrímsson Eyjaliðið.

*Leikmenn ÍBV (1) hafa skorað jafnmörk fyrir félagið í síðustu 4 Pepsi-deildarleikjum Eyjaliðsins og leikmenn mótherjanna (1).

*Garðar Gunnlaugsson hefur skorað 7 mörk í síðustu 4 leikjum ÍA í Pepsi-deildinni.

*Garðar Gunnlaugsson er fyrsti leikmaðurinn í átta ár sem nær að skora tíu mörk í fyrri umferð Pepsi-deildarinnar.

*Valsmenn eru eina liðið sem hefur ekki unnið útileik í Pepsi-deildinni í sumar.

*KR fékk fleiri stig í fyrstu tveimur leikjum sínum undir stjórn Willums Þórs Þórssonar (4) en í síðustu 5 leikjum sínum undir stjórn Bjarna Guðjónssonar (3).

*KR skorað jafnmörg mörk í fyrri hálfleik á móti Fylki og á fyrstu 45 mínútunum í fyrstu tíu leikjum sínum í Pepsi-deildinni í sumar.

*KR-ingar hafa náð í 12 stig og skorað 14 mörk í síðustu fjórum Pepsi-deildarleikjum sínum í Árbænum.

Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:

„Guðmundur Marinó Ingvarsson á Extra-vellinum:

Grasið lítur að mestu vel út. Það eru þó þrjú för þvert á völlinn sem líta út eins og Bugs Bunny hafi farið hér yfir.“

Ingvi Þór Sæmundsson á Ólafsvíkurvelli:

„Flugfélagið Grétar!" öskra gjammararnir.“

Jóhann Óli Eiðsson á Hásteinsvelli:

„Hendrickx fær boltann í hendina og aukaspyrna dæmd. Úr stúkunni er kallað „Hvar eru spjöldin?“ Það er komið heill hellingur af þeim.“

        

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Damir Muminovic, Breiðablik - 8

Andri Rafn Yeoman, Breiðablik - 8

Árni Vilhjálmsson, Breiðablik - 8

Óskar Örn Hauksson, KR - 8

Hilmar Árni Halldórsson, Stjarnan - 8

Jonathan Barden, ÍBV - 3

Derby Carillo, ÍBV - 3

Ólafur Páll Snorrason, Fjölnir - 3

Tómas Joð Þorsteinsson, Fylkir - 3

Ragnar Bragi Sveinsson, Fylkir - 3

Andrés Már Jóhannesson, Fylkir - 3

Ásgeir Eyþórsson, Fylkir - 3

Umræðan á #pepsi365

Mark 11. umferðar Atvik 11. umferðar Leikmaður 11. umferðar Markasyrpa 11. umferðar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×