Skoðun

Uppboð aflaheimilda á Íslandi – Byrjum á byrjuninni

Sigurjón Þórðarson skrifar

Á Íslandi ríkir gríðarleg mismunun á milli útgerða sem reka eigin fiskvinnslu og þeirra sem eru sjálfstæðar og landa fiski á markað. Sjálfstæðar útgerðir fá alla jafna helmingi hærra verð fyrir fisk á markaði, en þær sem landa afla inn í eigin vinnslu, á málamyndaverði sem ákveðið er af Verðlagsstofu skiptaverðs.



Afleiðing þess er að útgerðir sem landa inn í eigin vinnslu greiða lægri laun til sjómanna og lægri hafnargjöld en hinar. Þessi munur hefur í för með sér gríðarlegan aðstöðumun hjá fiskvinnslum sem þurfa að kaupa sinn fisk á markaði á hærra verði en þær vinnslur sem eru í tengslum við útgerð. Tvöfalda verðlagningin opnar sömuleiðis greiða leið til þess að losa hagnað af vinnslunni í gegnum eigin sölufyrirtæki á erlendri grund; svokallaða „hækkun í hafi“ með skattaskjól sem ekki ólíklegan endapunkt.



Það er með engu móti hægt að réttlæta núverandi skipan út frá samkeppnissjónarmiðum eða hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta. Mismununin hefur verið réttlætt með því að með fyrirkomulaginu sé hægt að gera langtímasamninga og tryggja afhendingaröryggi. Þessar fullyrðingar standast enga skoðun enda ekki gerðir fimm ára samningar um verð og afhendingu á frosnum karfaflökum, ekki frekar en á nautakjöti eða appelsínum.



Með því að allur fiskur sé verðlagður á opnum frjálsum fiskmarkaði er verið að tryggja útgerðinni hæsta verð hverju sinni og ekki verið að taka eitt eða neitt frá neinum. Aðstöðumunur stærri fyrirtækja með eigin vinnslu hefur verið einn mesti hvatinn að hraðri og óæskilegri samþjöppun í sjávarútvegi á síðustu árum.



Sanngjarnari verðlagning

Áður en farið verður í uppboð á aflaheimildum, í ætt við það sem Færeyingar eru að gera tilraunir með, þá verður að vera búið að girða fyrir þennan mikla aðstöðumun og það verður aðeins gert með því að allur fiskur sé verðlagður á markaði. Ef ekki, þá er einsýnt að heimildirnar lenda aðeins hjá stærri útgerðunum sem reka fiskvinnslu samhliða. Eins þarf að tryggja miklu betur en nú er gert að sjómenn verði ekki látnir taka þátt í kostnaði útgerða við uppboð en lenskan hefur verið sú að ýmsum kostnaði hefur verið velt í meira mæli yfir á þá.



Sanngjarnari verðlagning á fiski mun án efa leiða til bættrar stöðu hafna og launa sjómanna og þar af leiðandi auka skatttekjur ríkisins. Við breytinguna myndu tekjur hins opinbera aukast mun meira en sem næmi tvöföldun núverandi veiðigjalds og mun meira af arðinum dreifðist með heilbrigðari hætti um æðakerfi efnahagslífsins.



Mjög auðvelt er að tryggja að almenningur fái stærri skerf af sjávarauðlindinni og að hún renni ekki einungis til örfárra eða jafnvel úr landi. Ef það á að gerast þá þarf að byrja á réttum enda sem er að allur fiskur sé verðlagður á markaði og það áður en farið er í flóknar útfærslur á uppboðum á veiðiheimildum.



Dögun leggur því gríðarlega áherslu á að allur fiskur sé verðlagður á frjálsum markaði en það tryggir hag sjómanna, einnig að handfæraveiðar verði gefnar frjálsar en ekki er nokkur lifandi leið að stunda eitthvað sem kallast ofveiði með handfærum. Frelsið mun aðeins gera lífið skemmtilegra hringinn í kringum landið.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×