Körfubolti

Unnu bæði Lengjubikarinn annað árið í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Craion og Hallveig Jónsdóttir.
Michael Craion og Hallveig Jónsdóttir. Vísir/Daníel
Kvennalið Keflavíkur og karlalið KR tryggðu sér sigur í Lengjubikarnum í körfuboltanum um helgina, Keflavíkurkonur unnu 73-70 sigur á Val í úrslitaleik kvenna en KR-ingar unnu 83-75 sigur á nýliðum Tindastóls í úrslitaleik karla.

Tveir leikmenn voru að vinna Lengjubikarinn annað árið í röð en bæði með nýjum félögum. Hallveig Jónsdóttir vann með Keflavík í ár en Val í fyrra og Michael Craion vann með Keflavík í fyrra og KR í ár.

Craion (23 stig og 13 fráköst) var stigahæstur í KR-liðinu í úrslitaleiknum ásamt Brynjari Þór Björnssyni. Craion var með 21 stig og 13 fráköst í úrslitaleiknum í fyrra en þá vann Keflavíkurliðið stórsigur á KR í úrslitaleik.

Hallveig var reyndar aðeins með 6 stig í úrslitaleiknum en hún skoraði risastóra körfu fyrir Keflavík á spennandi lokamínútum. Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst í Keflavíkurliðinu með 20 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×