Innlent

Unnið að reykræstingu í Dugguvogi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Eldur kom upp í húsnæði í Dugguvogi rétt fyrir klukkan 17 í dag.
Eldur kom upp í húsnæði í Dugguvogi rétt fyrir klukkan 17 í dag. Vísir/Stefán
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á fimmta tímanum í dag vegna elds sem kom upp í húsnæði í Dugguvogi í Reykjavík. Um var að ræða minniháttar eld og var búið að slökkva hann þegar slökkvilið bar að garði.

Unnið er að því að reykræsta húsnæðið, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. Ekki er vitað hver upptök eldsins voru, að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×