Viðskipti innlent

United Silicon neitað um sex mánaða frest til að stöðva mengun kísilversins

Haraldur Guðmundsson skrifar
Kísilver United Silicon í Helguvík var gangsett um miðjan nóvember í fyrra.
Kísilver United Silicon í Helguvík var gangsett um miðjan nóvember í fyrra. Vísir/Vilhelm
Umhverfisstofnun ætlar ekki að verða við ósk United Silicon um að fyrirtækið fái sex mánaða frest til að bæta úr mengunarmálum og frávikum frá starfsleyfi. Mikilvægt sé að nú þegar verði í varúðarskyni stigin markviss skref til að ná betri tökum á rekstri kísilmálmverksmiðjunnar í Helguvík hvað varðar mengunarvarnir.

Þetta kemur fram í frétt á vef Umhverfisstofnunar. Þar er vísað í svarbréf United Silicon, sem Fréttablaðið fjallaði um, sem barst stofnuninni eftir að hún hafði áformað að fram skyldi fara verkfræðileg úttekt á rekstrinum, í kjölfar óhappa tengdum lyktarmengun og reykhreinsun, en um 300 kvartanir hafi borist frá íbúum á þeim fjórum mánuðum sem verksmiðjan hefur verið starfrækt, en þar var velt upp spurningum um jafnræði við ákvarðanatöku.

„Boðaðar aðgerðir Umhverfisstofnunar um óháða verkfræðilega úttekt og takmörkun á starfsemi verksmiðjunnar að óbreyttu, eru í svarbréfi Sameinaðs Silíkons [United Silicon] taldar óþarflega íþyngjandi fyrir fyrirtækið. Á það fellst Umhverfisstofnun ekki. [...]  Umhverfisstofnun telur jákvætt að rekstraraðili vinni að því að greina vandamál í rekstri verksmiðjunnar og setji fram úrbótatillögur bæði með samstarfi við framleiðanda mengunarvarnabúnaðar og með öðrum utanaðkomandi sérfræðingum. Stofnunin óskar eftir að fá allar upplýsingar er út úr þeirri greiningarvinnu munu koma um leið og þær liggja fyrir og geta þær upplýsingar haft áhrif á umfang þeirrar verkfræðilegu úttektar sem stofnunin hefur boðað,“ segir í frétt Umhverfisstofnunar.

Starfsfólk stofnunarinnar telur ekki nægilegar upplýsingar fram komnar til að falla frá þeim áformum sem tilgreind voru í bréfi til fyrirtækisins þann 21. febrúar. Í því segir að fara þurfi fram verkfræðileg úttekt á hönnun og rekstri verksmiðjunnar.

„Stofnunin mun því á næstu vikum leita eftir tilboðum í slíka úttekt. Rekstraraðili verður upplýstur um umfang úttektarinnar og úttektaraðila áður en af henni verður.

Í bréfi United Silicon til Umhverfisstofnunar þann 7. mars óskuðu stjórnendur kísilversins eftir sex mánaða fresti til nauðsynlegra úrbóta í mengunarmálum. Þar hörmuðu þeir að lyktarmengun hafi valdið íbúum Reykjanesbæjar óþægindum en sögðu hana mega rekja til tímabundinna vandamála og byrjunarörðugleika. 

„Félagið telur á hinn bóginn einsýnt að félagið sjálft, með liðsinni sérfróðra aðila sem leitað hefur verið til, sé best til þess fallið að leysa þann vanda sem við er að etja,“ sagði í bréfi United Silicon.


Tengdar fréttir

Gæti þurft að stöðva rekstur United Silicon

Starfsmenn Umhverfisstofnunar telja nauðsynlegt að ráðist verði í verkfræðilega úttekt á hönnun og rekstri kísilmálmverksmiðju United Silicon í Helguvík. Ástæðu þess má rekja til tíðra mengunaróhappa í rekstri verksmiðjunnar. Svo gæti farið að stöðva þurfi reksturinn tímabundið og framkvæma nauðsynlegar úrbætur.

Vill sex mánaða frest til að stöðva mengun

United Silicon vill lengri frest til úrbóta í mengunarmálum. Harma að lykt hafi valdið íbúum Reykjanesbæjar óþægindum en tala um tímabundin vandamál. Slökkva þurfti á verksmiðjunni í Helguvík um síðustu helgi vegna bilunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×