Enski boltinn

United og Ajax ná samkomulagi um Blind

Anton Ingi Leifsson skrifar
Blind fagnar sínu fyrsta landsliðsmarki í sumar.
Blind fagnar sínu fyrsta landsliðsmarki í sumar. Vísir/Getty
Manchester United hefur komist að samkomulagi við Ajax um kaup á hollenska landsliðsmanninum Daley Blind.

Blind, sem er 24 ára gamall, getur spilað sem vinstri bakvörður, en einnig getur hann spilað á miðjunni. Hann var hluti af hollenska landsliðshóp Louis van Gaal sem gekk afar vel á HM í sumar.

United og Blind eiga enn eftir að semja um kaup og kjör, en ef það gengur í gegn verður Blind fimmti leikmaðurinn sem United fær í sumar.

Hollenski landsliðsmaðurinn hefur spilað 100 leiki fyrir Ajax og skorað í þeim þrjú mörk. Hnan skoraði svo fyrsta landsliðsmark sitt í sumar á HM, en alls hefur hann leikið nítján A-landsleiki fyrir Holland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×