Íslenski boltinn

Unicaja heldur toppsætinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón í leik með íslenska landsliðinu.
Jón í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Daníel
Jón Arnór Stefánsson spilaði í rúmar sautján mínútur þegar Uniacja Malaga vann Herbalife Gran Canaria 68 77-68 í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Með sigrinum hélt Uniacja toppsætinu, en þeir lögðu grunninn að sigrinum með frábærum öðrum leikhluta. Þeir unnu hann með fjórtán stiga mun 25-11 eftir að hafa tapað fyrsta leikhlutanum 19-17.

Jón Arnór skoraði fjögur stig á þeim tíma sem hann spilaði. Hann tók þrjú fráköst einnig.

Unicaja heldur toppsætinu, en þeir eru með tveggja stiga forystu á Real Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×