Lífið

Ungur upptökustjóri á uppleið

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Arnar Ingi Ingason er ungur upptökustjóri sem er á hraðri uppleið en hann á tvö lög á nýútgefinni plötu Sturla Atlas.

„Logi Pedro úr Retro Stefson, sem var upptökustjórinn á mestallri plötunni, hafði samband við mig sirka þremur vikum áður en mixteipið var gefið út. Þetta gerðist allt mjög hratt,” segir Arnar. Eftir útgáfuna á plötunni hefur hann verið dj með Loga en þeir spiluðu meðal annars á Secret Solstice-hátíðinni um seinustu helgi. Áður hefur Arnar gert lög fyrir 12:00 og Rjómann, sem eru skemmtiþættir í Verzló.

Lögin sem Arnar gerði fyrir Sturla Atlas heita Roll up og Pills en hann hjálpaði einnig til við gerð lagsins FourfortyFive. „Það er ótrúlega gaman að heyra hvað platan hefur fengið góðar undirtektir. Svo heyrði ég líka að Þorbjörn Þórðarson í Hip Hop og Pólitík sagði að uppáhaldslögin sín væru meðal annars Roll Up og Pills,“ segir Arnar.

Arnar sækir mikinn innblástur í hiphop og R&B. „Til þess að byrja með leit ég mikið upp til Kanye West, eins og allir, en núna er ég einnig mikill aðdáandi upptökustjóra eins og Cashmere Cat, 40, Boy-1da og flestum sem Drake hefur verið að vinna með.“

Arnar byrjaði að fikta við tónlistina þegar hann fékk tölvu í fermingargjöf. „Ég lærði þetta allt á Youtube og byrjaði að semja tónlist alveg sjálfur. Það hjálpaði líka mjög mikið til við lagasmíðina að ég var í Skólahljómsveit Kópavogs undir góðri leiðsögn Össurar Geirssonar sem og fleiri góðra þegar ég var yngri.“

Eftir að Arnar byrjaði í Verzló fékk hann tækifæri til þess að koma tónlistinni sinni á framfæri. Arnar er með nokkur verkefni í vinnslu en það verður spennandi að fylgjast með honum á næstunni.

Hér fyrir neðan eru lögin Roll up og Pills ásamt Ekki Segja Neinum með 12:00. Hægt er að hlusta á alla Sturla Atlas plötuna hér.


Tengdar fréttir

Sturla Atlas vekur athygli: Nýtt lag og nýtt myndband

Í myndbandinu má sjá Sigurbjart Sturlu Atlason, sem kallar sig Sturlu Atlas. Með honum er fjöldi manna, þar á meðal Logi Pedro Stefánsson úr Retro Stefson og Young Karin og rapparinn Emmsjé Gauti.

Nýtt myndband frá Sturlu Atlas

Listamaðurinn Sturla Atlas hefur sent frá sér lagið nýtt lag sem ber nafnið Francisco og nýtt myndband í kaupbæti.

Kynna ungan listamann til sögunnar

Ungur listamaður gefur út undir merkjum Les Frères Stefson. Aron Hannes er átján ára gamall og segir Logi Pedro Stefánsson að hann eigi framtíðina fyrir sér. Logi segir útgáfuna lið í að endurheimta ferskleikann aftur frá markaðsöflunum.

Leyndardómsfullur listamaður stígur fram

Söngvarinn Sturla Atlas sendi frá sér sitt fyrsta myndband í gær. Hann hefur vakið athygli en er samt sveipaður dulúð. Stefnir á að gefa út plötu í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×