Sport

Ungur drengur fíflaði Federer | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Roger Federer, einn besti tenniskappi sögunnar, mætti Búlgaranum Grigor Dimitrov í DNP Paribas-sýningarleiknum í New York fyrr í vikunni.

Þó fólkið væri mætt til að sjá tvo af bestu tennisköppum heims leika listir sýnir var það ungur drengur sem stal senunni.

Dimitrov leyfði drengnum að svara uppgjöf Federers sem hann gerði ágætlega. Eftir nokkur högg fram og til baka lyfti drengurinn svo boltanum yfir Federer sem var varnarlaus.

Þó allt væri þetta í gamni gert skammaðist Federer sín aðeins enda höggið hjá drengnum alveg frábært.

Svo var ekkert sérstaklega skemmtilegt fyrir Federer að vera svona felldur á eigin bragði enda eru fáir betri í heiminum í svona skotum en hann.

Þetta glæsilega högg drengsins unga má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×